Hlutabréfin féllu um tíu krónur eftir útboð

Hlutabréf í Bláa lóninu seldust á 85 krónur við upphaf viðskipta í kauphöllinni í dag. Það er tíu krónum undir 95 króna verðinu sem fékkst fyrir bréfin í hlutabréfaútboði í síðustu viku.

Markaðsverðið var því 10,5 prósentum lægra en útboðsverðið. Síðan þá hefur verðið þokast upp á við og var 84,64 krónur á hvert hlutabréf í síðustu viðskiptum. Það er samt 9,0 prósentum undir útboðsverði.

Hlutabréf í Bláa lóninu hafa gengið kaupum og sölum fyrir 118 milljónir það sem af er morgni.

150 milljón hlutir voru boðnir út á þriðjudag í síðustu viku og lauk útboðinu á föstudag. Markmiðið var að sækja 14 milljarða króna með útboðinu. Allir hlutirnir seldust.

Einstaklingar keyptu um 40 prósent hlutafjárins og fagfjárfestar restina. Einstaklingar keyptu fyrir 6,9 milljarða. Alls söfnuðust 15,3 milljarðar króna með útboðinu.

Fréttin hefur verið uppfærð.