Hlutafjárútboð Bláa lónsins hefst í næstu viku

Hlutafjárútboð Bláa lónsins hf. hefst næsta þriðjudag, 10. nóvember, og lýkur 13. nóvember. Þetta segir í tilkynningu frá félaginu.

Gert er ráð fyrir að niðurstöður þess verði birtar í síðasta lagi 16. nóvember og að hlutabréf verði afhent í síðasta lagi 20. nóvember.

Hluthafar í Bláa lóninu samþykktu 30. október að ráðast í hlutafjárútboð og skrá fyrirtækið á markað.RÚV / Ragnar Visage