Höfuðkúpubrotnaði þegar kærastinn réðst á hana

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi. Hann réðst á þáverandi kærustu sína á heimili þeirra og sló hana þannig að hún höfuðkúpubrotnaði og blæddi inn á höfuðkúpuna auk fleiri áverka.

Í ákæru segir að maðurinn hafi ráðist á konuna með ofbeldi og reynt að svipta hana lífi. Hann er sagður hafa notað hart og þungt áhald með skörpum kanti til verksins. Auk ofangreindra áverka hlaut konan djúpan skurð á gagnauga, kjálkabrot og sár á höku. Höfuðkúpubrotinu er þannig lýst að í því hafi verið undirliggjandi mölbrot á ennis- og kinnbeini.

Maðurinn réðst á konuna í júlí, að því er fram kemur í ákæru.

Konan krefst þriggja milljóna króna í miskabætur. Hún fer líka fram á þjáningabætur. Ekki er tekið fram í ákæru hversu há hún eigi að vera. Beðið er þar til komið er í ljós hversu lengi konan var rúmföst og veik eftir árásina.