Þróun nýs megrunarlyfs bandaríska lyfjafyrirtækisins Amgen byggir á rannsóknum vísindamanna deCode á erfðaefni nærri tvö hundruð þúsund Íslendinga. Bloomberg fjallar ítarlega um þróun lyfsins sem gengur undir heitinu MariTide og er ætlað að keppa við sambærileg lyf Eli Lilly og Novo, sem áður hét Novo Nordisk.
Amgen keypti deCode árið 2012 og hefur nýtt erfðarannsóknir þess við uppgötvanir og þróun nýrra lyfja. Erfðaefni næstum tvö hundruð þúsund Íslendinga er geymt í frysti í Vísindagörðum Háskóla Íslands og Bloomberg greinir frá því hvernig rannsóknir á því hafi nýst við þróun MariTide.
Amgen stefnir að því að lyfið verði gefið mánaðarlega í stað vikulega líkt og Zepbound og Wegovy. Greinendur telja þó að sú sérstaða geti orðið fyrir bí árið 2028 þegar MariTide nær til neytenda.
Bloomberg rifjar sérstaklega upp hvernig vísindamenn DeCode söfnuðu erfðaefni Íslendinga, sem var upphaflega mjög umdeilt, og leituðu að örlitlum frávikum sem ýmist vernduðu fólk fyrir sjúkdómum eða gerðu það sérlega viðkvæmt fyrir þeim.
Þeir hafi einnig rannsakað líffræðilegt ferli til þyngdarstjórnunar tengt GIP-hormóninu sem spilar lykilhlutverk í því hvernig líkaminn vinnur úr fæðu. Það sýndi að vísindamenn Amgen væru á réttri leið við þróun MariTide, að mati Murielle Véniant-Ellison, sem fer fyrir teymi vísindamanna fyrirtækisins. View this post on Instagram
A post shared by Bloomberg Business (@bloombergbusiness)
