Snorri Jakobsson hagfræðingur segir að hræðsla við hertar reglugerðir gagnvart gagnaverum og gervigreindarfyrirtækjum valdi fallinu sem varð á gengi bréfa í bandarískum tæknifyrirtækjum í gær.
Fjárfestar óttast að afgerandi sigur Demókrata í nýafstöðnum þingkosningum í Bandaríkjunum hægi á uppgangi í gervigreind sem knúið hefur markaðinn síðustu ár.
Snorri segir lækkunina einkennast af ótta. Reglur hafi verið frjálslegar, sérstaklega í sambandi við umhverfissjónarmið og persónuverndarsjónarmið.
Fallið hafi lítil áhrif hér á landi
Mjög miklar hækkanir hafi verið á tæknifyrirtækjum og gervigreindarfyrirtækjum, sem sé ólíkt markaðnum hér heima. „Margir hafa talað um það að það sé komin einhver tæknibóla þarna úti.“
Spennan og væntingarnar séu miklar og oftast komi einhver leiðrétting dagana eftir svona mikið fall. „Þetta mun líklega réttast eitthvað af en til lengri tíma er það óvíst,“ segir Snorri.
Samkvæmt Snorra hefur fallið á hlutabréfamörkuðum lítil áhrif hér á landi.
„Kannski eitthvað smit af þessum fyrirtækjum sem eru með tvíhliða skráningu en svona almennt ekki, enda er íslenski hlutabréfamarkaðurinn meira í raunheimum.“
Í spilaranum hér fyrir neðan má horfa á umfjöllun sjónvarpsfrétta um lækkanir á alþjóðamörkuðum eftir sigur Demókrata í Bandaríkjunum sem endar á viðtali við Snorra Jakobsson.Hagfræðingur segir að ótti við hertar reglugerðir valdi falli hlutabréfa í bandarískum tæknifyrirtækjum eftir sigur Demókrata í nýafstöðnum þingkosningum í Bandaríkjunum. Fallið hafi lítil áhrif hér á landi.
