Hreyfing mælist í Svínfellsheiði

Hreyfingar hafa mælst í hlíðinni ofan við austanverðan Svínafellsjökul í Öræfum en það er í fyrsta sinn síðan vöktun var komið þar upp árið 2018 sem hreyfingar sjást svo greinilega að því er segir á vef Veðurstofu Íslands.

Aflögunin mælist frá einum upp í þrjá sentimetra en engin merki eru um að þetta tengist breytingum á eldstöðinni í Öræfajökli.

Stór skriða féll úr hlíðinni niður á jökulinn árið 2013, en samkvæmt hættumati sem gert var á síðasta ári eru litlar líkur á að skriða úr hlíðinni muni ógna byggð, en stórt hlaup gæti þó náð niður í lónið framan við jökulinn og valdið flóði.

Hreyfingarnar eru hægar og benda ekki einar og sér til bráðrar hættu á berghlaupi en það mat getur breyst. Hreyfingarnar gætu skýrst af vatnsþrýstingi innan fjallsins en úrkoma í Skaftafelli hefur verið yfir meðallagi.

Þær kalla ekki á sérstakan viðbúnað að svo stöddu, umfram aukna vöktun sérfræðinga Veðurstofu og Háskóla Íslands.

Fyrirhugað er að fara á vettvang þegar aðstæður leyfa, mæla fasta mælipunkta, taka myndir með dróna og yfirfara mælibúnað.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.