Íbúar Hrunamannahrepps eru nú 1.018, en voru 982 í desember 2025. Þeim hefur því fjölgað um 36, eða um 3,7% á árinu sem er að líða. Aldís Hafsteinsdóttir sveitarstjóri segir þetta ánægjulega þróun, sem gefi tilefni til bjartsýni og skapi tækifæri til að efla samfélagið enn frekar.
„Já, það er allt að gerast og það er gaman þegar það er fjör og fólki fjölgar og mikið um að vera. Okkur fjölgar og fjölgar og nú erum við búin að ná því að komast yfir þúsund íbúa markið og þá erum við þokkalega sátt en auðvitað viljum við gjarnan sjá fleiri, það eru allir velkomnir,” segir Aldís.
Aldís fagnar mikilli uppbyggingu í sveitarfélaginu.
„Já, bæði er verið að byggja hér mikið af íbúðarhúsnæði af fjölbreyttum tegundum. Það er líka verið að byggja í dreifbýlinu fjós, reiðskemmur og fleira þannig að það er mikið um að vera”.
Hrunamannahreppur var nýlega kosið sveitarfélag ársins 2026 og það eru sveitarstjórinn og íbúar allir himinlifandi með.
Hvernig skýrir þú þennan kraft, af hverju er svona mikið að gerast hjá ykkur?
„Já, hér er náttúrulega sagt að þetta sé langbesta sveitin. Hér er líka bara mjög gott að búa, það er afskaplega gott samfélag hérna og gott mannlíf og svo erum við á vissan hátt í stúkusæti. Við erum passlega langt frá höfuðborgarsvæðinu þannig að það er ekkert langt að sækja fjölbreytta þjónustu ef fólk vill það en annars er hér allt sem þarf,” segir Aldís.
Hún segir að veturinn leggist vel í íbúa sveitarfélagsins.
„Mjög svo en Hrunamannahreppur er svona vetrarparadís af því að við erum svo langt frá sjó þá verða svona vetrarstillur þannig að hér er hægt að setja upp gönguskíðabrautir sem halda sér eitthvað og hér er skautasvell, sem er gert af sjálfboðaliðum á hverjum vetri, stórt og mikið þannig að þetta er ofboðslega skemmtilegt svæði á veturna líka,” segir Aldís.
