Hundi bjargað í eldsvoðanum í Norðlingaholti

Maðurinn sem býr í íbúð sem kviknaði í í Norðlingaholti í gærkvöld flúði íbúðina með því að fara fram af svölum sínum af þriðju hæð. Þetta segir nágranni hans við fréttastofu. Húsið sem kviknaði í stendur við Reiðvað.

Maðurinn var fluttur á slysadeild og skoðaður fyrir reykeitrun.Slökkviliðið bjargaði hundi úr brennandi íbúð í Norðlingaholti í gærkvöld. Sá sem býr í íbúðinni komst út með því að fara fram af svölunum.

Annar nágranni sem varð vitni að atburðinum í gær segir við fréttastofu að hundur hafi orðið eftir á svölunum. Slökkviliðsmenn hafi reist stiga og komið niður með hundinn um stigaganginn. Þá var búið að ná nægilegum tökum á eldinum til þess að fara þá leið út.

Eldurinn kom upp á tólfta tímanum í gær og allt tiltækt slökkvilið var kallað til. Slökkvistarfi lauk um klukkan eitt í nótt. Líkt og sjá má á meðfylgjandi myndefni var talsverður reykur og viðbragð á vettvangi.

Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir að vel hafi gengið að ráða niðurlögum eldsins. Upptök hans eru ókunn.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.