Kílómetragjald hækkur um 15,9% um áramótin. Þegar gjaldið var sett á um síðustu áramót var olíugjald afnumið og lækkaði eldsneytisverð töluvert. Verðið hefur hækkað jafnt og þétt á árinu meðal annars vegna ástandsins á Hormússundi.
Stjórnvöld brugðust við með því að lækka virðisaukaskatt úr 24% í 11% frá 1. maí til 31. ágúst. Virðisaukaskatturinn hækkaði aftur í 24% þann 1. september.
- nóvember var styrkur ríkisins til kaupa á rafmagnsbílum lækkaður úr 500.000 krónum í 400.000.
Hvað kostar að reka bíl?
Árlegur rekstrarkostnaður við meðalbíl getur verið meira en hálf milljón króna. Þá eru bílastæðagjöld, tjón, minniháttar viðhald og önnur ófyrirséð útgjöld ekki tekin með.
Rekstrarkostnaður
Toyota Yaris
Tryggingar
196.000 kr.
Ábyrgðartrygging/iðgjald
128.000 kr.
Kaskótrygging
68.000 kr.
Bifreiðagjöld
44.320 kr.
2x
22.160 kr.
Skoðun
18.000 kr.
1x ástandsskoðun
18.000 kr.
Umfelgun
34.000 kr.
2x dekkjaskipti
17.000 kr.
Kílómetragjald
97.300 kr.
Akstur á ári
14.000 km
Gjald fyrir hækkun
6,95 kr./km
Kostnaður við bensín
185.640 kr.
Eyðsla á 100 km
5,2 lítrar
Akstur á ári
14.000 km
Bensín á ári
728 lítrar
Verð á lítra
255 kr.
Samtals á ári
575.260 kr.
Á mánuði
47.938 kr.
Hér er reynt að greina árlegan rekstrarkostnað við þrjár mismunandi bifreiðar. Viðmiðunarbílarnir eru allir nýskráðir 2023 og voru með þeim vinsælustu það ár.
Þetta eru Tesla Model Y Long Range rafmagnsbíll, Dacia Duster dísilbíll og Toyota Yaris bensínbíll.
Ábyrgðartrygging er lögbundin og flestir velja að hafa kaskótryggingu á dýrari bílum. Fréttastofa leitaði tilboða hjá tryggingafélögum. Í svörum þeirra kom fram að búseta getur haft áhrif á iðgjöld, auk annarra þátta.
Bifreiðagjald, skoðun og umfelgun
Bifreiðagjöld eru greidd tvisvar á ári. Þau eru reiknuð út frá þyngd bílsins og hversu mikinn koltvísýring hann losar.
Allir bílar eiga að fara í gegnum skoðun á skoðunarstöðvum. Það getur verið misdýrt en tekið er mið af meðalverði. Venjulegir fólksbílar, sendibílar og bifhjól á að skoða í fyrsta sinn eftir fjögur ár, svo á tveggja ára fresti í tvö skipti og árlega eftir það. Bílarnir sem eru til viðmiðunar hér fara fyrst í skoðun árið 2027.
Flestir bifreiðaeigendur á Íslandi eiga bæði sumar- og vetrardekk, yfirleitt þó ekki á felgum.
Því þarf að skipta um dekk tvisvar á ári og láta umfelga bílinn. Ódýrasta umfelgun kostar 12.700 krónur en meðalverð er í kringum 17.000.
Eldsneytisverð og kílómetragjald
Til þess að einfalda útreikninga er miðað við meðalakstur fólksbíla á Íslandi og meðaleyðslu á lítrum / kílówöttum á 100 kílómetra í akstri. Meðalbíl er ekið 14.000 kílómetra á ári.
Kílómetragjald fyrir alla bílana er 97.300 krónur á ári. Það hækkar þó um rúmlega eina krónu á kílómetra um áramótin og gjaldið hækkar 112.840 á ári.
Þegar allt er tekið til er árlegur rekstrarkostnaður miðað við bensínverð í nóvember 2026:
- Tesla: 512.260 kr á ári / 42.688 á mánuði
- Duster: 621.908 kr á ári / 51.884 á mánuði
- Yaris: 575.260 kr á ári / 47.938 á mánuði
Tölurnar eru fengnar með verðsamanburði á eldsneyti, tryggingum og umfelgun ásamt opinberum tölum um bifreiðagjöld og kílómetragjald.
Þarna er ekki tekið tillit til annars viðhalds (svo sem endurnýjunar á rúðuþurrkum eða perum), bílalána, veggjalda, bílastæða eða tjóns.
Rekstrarkostnaður
Dacia Duster
Tryggingar
196.000 kr.
Ábyrgðartrygging/iðgjald
128.000 kr.
Kaskótrygging
68.000 kr.
Bifreiðagjöld
44.320 kr.
2x
22.160 kr.
Skoðun
18.000 kr.
1x ástandsskoðun
18.000 kr.
Umfelgun
34.000 kr.
2x dekkjaskipti
17.000 kr.
Kílómetragjald
97.300 kr.
Akstur á ári
14.000 km
Gjald fyrir hækkun
6,95 kr./km
Kostnaður við dísilolíu
232.988 kr.
Eyðsla á 100 km
5,3 lítrar
Akstur á ári
14.000 km
Dísilolía á ári
742 lítrar
Verð á lítra
314 kr.
Samtals á ári
622.608 kr.
Á mánuði
51.884 kr.
Fjölgun rafmagnsbíla
Á fyrstu tíu mánuðum ársins voru nýskráðir fólksbílar 11.641. Það er 9,4% samdráttur frá sama tíma í fyrra. Nýskráningar bíla á fyrstu tíu mánuðum ársins frá 2020 voru flestar árið 2023, rúmlega sextán þúsund.
Kia er algengasta nýskráða bílategundin. Næst koma bílar frá Toyota og Tesla fylgir rétt á eftir.
Rekstrarkostnaður
Tesla Y Long Range
Tryggingar
224.000 kr.
Ábyrgðartrygging/iðgjald
138.000 kr.
Kaskótrygging
86.000 kr.
Bifreiðagjöld
44.320 kr.
2x
22.160 kr.
Skoðun
18.000 kr.
1x ástandsskoðun
18.000 kr.
Umfelgun
34.000 kr.
2x dekkjaskipti
17.000 kr.
Kílómetragjald
97.300 kr.
Akstur á ári
14.000 km
Gjald fyrir hækkun
6,95 kr./km
Hleðsla og rafmagn
94.640 kr.
Eyðsla á 100 km
16,9 kWh
Akstur á ári
14.000 km
Heimahleðsla (ON)
22,4 kr./kWh
Hraðhleðsla, allt að
69 kr./kWh
Viðmið í útreikningi
40 kr./kWh
Rafmagn á ári
2.366 kWh
Samtals á ári
512.260 kr.
Á mánuði
42.688 kr.
Nýskráningum rafbíla fjölgar mikið. Rafmagns-, tengiltvinn- og tvinnbílar eru 90,9% allra nýskráðra og í fyrsta sinn eru bílar sem ganga eingöngu fyrir rafmagni yfir 50%.
Athygli vekur að bílaleigur kaupa ekki eins mikið af rafbílum og einstaklingar og fyrirtæki. Þar eru tvinnbílar (hybrid) og tengiltvinnbílar (PHEV) algengastir.
Hvað kostar að kaupa bíl?
Það getur verið stór ákvörðun að kaupa sér bíl. Huga þarf að orkugjafa, stærð, fjórhjóladrifi og öðru slíku fyrir íslenskar aðstæður. Svo þarf að ákveða hvort keyptur er nýr eða notaður bíll.
Hægt er að kaupa nýjan Toyota Yaris fyrir 5.750.000 krónur og það er hægt að bæta við aukabúnaði sem hækkar verðið. Nýr Dacia Duster kostar 7.590.000 krónur.
Rafbílastyrk sem hefur verið í boði fyrir kaup á nýjum rafbíl var breytt 1. nóvember. Styrkurinn var lækkaður úr 500.000 krónum í 400.000.
Ný Tesla model Y með fjórhjóladrifi kostar 8.029.000 án allra aukahluta.
Svo er hægt að kaupa notaða bíla. Verð á þeim er mismunandi og fer eftir ástandi og akstri bílsins.
Toyota Yaris árgerð 2023 kostar frá 2,5 milljónum upp í rúmlega 3,5 milljónir.
Tesla Model Y árgerð 2023 fæst frá rúmlega 4,5 milljónum upp í 6,5 milljónir.
Dacia Duster árgerð 2023 kostar frá tveimur milljónum upp í 3,5 milljónir.
Hvernig sem á það er litið kostar milljónir að kaupa nýjan eða nýlegan bíl.
