Hvað leysti deilu kennara, sveitarfélaga og ríkis á síðustu stundu?

Tillaga ríkissáttasemjara til samninganefnda Kennarasambandsins, ríkis og sveitarfélaga um lausn í deilu þeirra fólst í því að endurskoðunarpunktur var færður til 15. mars, samkvæmt upplýsingum frá Ástráði Haraldssyni ríkissáttasemjara.

Hvað er endurskoðunarpunktur?

Það er tímapunktur í kjarasamningunum, forsenduákvæði, þar sem kjarasamningurinn er rýndur og kannað hvort forsendur hans hafi staðist.

Í kennarasamningnum var slíkur tímapunktur í gær, þar sem kennurum fannst forsendur kjarasamningsins hafa brostið vegna þess að kennarasambandið taldi að vinnan við virðismatið hefði gengið of hægt. Og kennarar hefðu þá getað sagt kjarasamningnum upp fyrir miðnætti í gær.

Ríkissáttasemjari bauð deiluaðilum á sinn fund í gær og lagði fram tillöguna um nýjan endurskoðunarpunkt.

Hvað er virðismat?

Virðismat er aðferð sem er notuð til að ákveða virði starfa og laun í framhaldinu.

Þættir sem eru metnir eru þekking, færni, álag, reynsla, ábyrgð og vinnuaðstæður. Kennarar sömdu um þetta í síðustu kjarasamningum.

Hvað gerist ef samningsaðilar meta það sem svo að það verði sama staða og er núna – þann 15. mars?

Ríkissáttasemjara segir að stefnan sé að í mars verði komin skýrari mynd af virðismatinu og vinnunni við það. Þá verði auðveldara fyrir samninganefndirnar að ákveða hvort þær vilji halda áfram eða segja kjarasamningnum upp.

Ef kjarasamningunum verður sagt upp segir ríkissáttasemjari að öll réttaráhrif kjarsamningsins muni frjósa. Í stuttu máli munu allar launahækkanir og allt sem fylgir bíða þar til samkomulag næst.

Með þessum nýja skoðunarpunkti í vor er vonast til, segir sáttasemjari, að það verði hvatning til samningsaðila að vinna verkefnið um virðismatið áfram af heilum hug.