Hvers vegna þarf að spara heitt vatn í frosti?

Akureyringar hafa verið beðnir að fara sparlega með heitt vatn vegna kuldakasts undanfarinna daga. Það hefur þó ekki verið neinn fimbulkuldi við Eyjafjörð. Talsmenn Norðurorku segja bilanir og mikla notkun helstu skýringarnar.

Hörður Tryggvason, fagstjóri hita- og vatnsveitu hjá Norðurorku, segir:„Við eigum bara ekkert allt of mikið af heitu vatni í kerfinu, en erum einnig að glíma við bilanir. Þannig að þó það sé ekki mikið frost akkúrat þessa daga þá er það ekki að hjálpa okkur. Í grunninn er þetta það að það vantar vatn í kerfið.“

Fjórir hlutir sem þú getur gert til þess að spara heita vatnið:

  • Loftaðu út öðru hverju, en ekki hafa stöðugt opna glugga.
  • Passaðu að ofninn geti hitað rýmið en sé ekki einangraður á bakvið gardínur eða húsgögn.
  • Slepptu því að fara í heita pottinn heima.
  • Takmarkaðu heitt vatn í snjóbræðslu. Það getur farið mikill hiti í að bræða snjó úr innkeyrslum.

Það á enginn að þurfa að hafa kalt heima hjá sér að sögn sérfræðinganna. Hins vegar myndi það hjálpa verulega ef fólk færi ekki með heita vatnið eins og ótæmandi auðlind.

Gæti þurft að takmarka hitann í sundlaugina

Talsmenn Norðurorku segja vonast til þess að ekki þurfi að skerða vatn til sundlaugarinnar, sem auðvitað notað mikið af heitu vatni.

„Við erum búin að minnka við snjóbræðslur á fótboltavöllum“, segir Hörður, sem dæmi um þær skerðingar sem þegar hafa orðið til stórnotenda.

Nú er áfram frost í kortunum á Akureyri næstu daga, en Norðurorka vonast til þess að með samstilltu átaki um orkusparnað og með því að gera við bilanir, takist þeim að halda þjónustunni tiltölulega óskertri.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.