Erlendur maður á þrítugsaldri er meðal sex sem grunuð eru um að hafa átt aðkomu að því að þvinga barn í hjónaband. Sex eru grunuð um mansal og eitt þeirra um kynferðisbrot. Fólkið er allt erlendir ríkisborgarar og frá sama landi.
Þetta staðfestir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðalsaksóknari hjá lögreglunni á Suðurnesjum.
Foreldrar stúlkunnar meðal handtekinna
Málið er frá 2024. Í gær greindi fréttastofa frá því að fimm hefðu verið handtekin eftir að fullorðinn karl ferðaðist til landsins með 15 ára stúlku í nóvember 2024. Meðal þeirra voru umræddur maður, faðir hans og foreldrar stúlkunnar.
Stúlkan var falin barnavernd eftir að hún og maðurinn voru stöðvuð.
Skýrslur voru teknar af stúlkunni. Í þeim kom fram að foreldrar hennar hefðu gift hana manninum. Athöfnin fór fram erlendis.
Stúlkan sagði brúðkaupið hafa verið haldið í húsnæði á vegum fjölskyldu mannsins og lýsti því að hann hefði átt við hana kynferðismök.
Samskipti við erlend yfirvöld vegna málsins
Maðurinn sem kom með stúlkuna til landsins var búsettur á Íslandi þegar hann var handtekinn. Lögreglan getur ekki upplýst um það hvort hann sé það enn.
Rannsókn stendur yfir í samstarfi við önnur löggæsluyfirvöld í Evrópu – í fleiri en einu ríki. Alda Hrönn vill ekki upplýsa um það hvaða ríki það eru. Hún vill ekki heldur tjá sig um það hvort fólkið sé rannsakað fyrir fleiri glæpi en mansal og kynferðisbrot.
Alda Hrönn segir að nokkur mál þar sem grunur hefur vaknað um barnahjónabönd hafi komið á borð lögreglu. „Þetta kemur einstaka sinnum fyrir – sem betur fer ekki oft,“ segir hún.
