Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd samþykkti í morgun að hefja frumkvæðisrannsókn á samskiptum fjármálaráðherra og Landsvirkjunar. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra flutti þinginu skýrslu í gær um málefni Landsvirkjunar en málið snýst um samskipti stjórnar Landsvirkjunar, ráðherra og fráfarandi forstjóra, Harðar Arnarsonar.
Stjórnarandstaðan heldur því fram að ráðherra hafi sagt ósatt í þinginu um samskipti sín við fyrirtækið. Daði Már hafnaði því í sjónvarpsfréttum í fyrrakvöld en í kjölfar umræðunnar í gær fóru þingmenn Viðreisnar fram á rannsókn.
Fréttastofa ræddi við Eirík Björn Björgvinsson, þingmann Viðreisnar og starfandi formann nefndarinnar, og einnig annan varaformann, sem er Ingveldur Anna Sigurðardóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks, áður en fundurinn hófst.
„Umræðan í gær í þinginu leiddi það í ljós að það var samstaða um það frá ráðherra og þeim sem voru í þessu samtali í framhaldi af skýrslu ráðherra um þessi mál að það væri rétt að senda málið til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og við erum bara í rauninni að verða við því,“ sagði Eiríkur Björn. Einnig þyrfti að kalla eftir heilmiklum gögnum.Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis ætlar að hefja frumkvæðisrannsókn á samskiptum fjármálaráðherra og Landsvirkjunar. Það var samþykkt á fundi nefndarinnar rétt fyrir hádegi. Málið verður unnið eins hratt og verða má.
„Það er mikið að lesa og mörg gögn sem liggja þarna að baki miðað við alla umræðuna sem var í þinginu í gær þannig að þetta mun taka einhvern tíma og við munum gera þetta eins hratt og við mögulega getum.“
Hvað finnst þér sjálfum um þann óróa sem er í kringum þetta mál eftir að forstjóri Landsvirkjunar hætti? „Persónulega finnst mér málið kannski ofvaxið ef við getum orðað það sem svo. Mér fannst ráðherra gera grein fyrir málinu ágætlega í gær,“ sagði Eiríkur Björn.
Ingveldur Anna Sigurðardóttir fagnar rannsókninni, sem hún segir að sé verulega mikilvæg.Eins og kom fram í gær voru lítil sem engin svör frá ráðherra og það liggja fyrir í málinu ýmis gögn, til dæmis minnisblað frá Herði sem er dagsett í júní og ráðherra kemur hér upp í pontu Alþingis og segir að sagan sé öll sögð 19. október, sem er einfaldlega ekki rétt, og í þessu minnisblaði kemur meðal annars fram að honum finnist vera þarna óeðlileg pólitísk afskipti af Landsvirkjun, sem er alvarlegt því þetta er okkar dýrmætasta fyrirtæki og þetta má einfaldlega ekki gerast.
Nefndin ætlar að vinna rannsóknina eins hratt og kostur er. Að því búnu er líklegast að skýrsla verði gefin út þar sem samskiptin verða rakin og hver sagði hvað, hvenær og við hvern – og hver sagði satt og hver ek
