Í burtu símalaus í þrjú ár og einn dag

„Ég var að vinna á þýsku seglskipi sem tekur stundum farandsveina með. Fyrir fjórum árum var ég að sigla og þá komu fjórir farandsveinar um borð og ég fór að spyrja þá út í þeirra líf og þessi skrítnu föt sem þeir ganga í. Ég fann strax að þetta væri eitthvað sem mig langaði að prófa,” segir Freyja Sif sem nú er að hefja þriggja ára starfsnám farandsveina samkvæmt þúsund ára gamalli þýskri hefð.

Freyja sem hefur nýlega lokið sveinsprófi í húsgangasmíði er lögð af stað út í heim þar sem hún mun flakka um með öðrum farandsveinum í þrjú ár og einn dag. Reglurnar eru þær að hún má ekki vera með síma eða tölvu, hún má ekki koma nær heimili sínu en 50 kílómetra og hún verður að útvega sér mat og gistingu með því að bjóða vinnu í staðinn.