Einkarekin búsetuúrræði fyrir börn í fjölbýlishúsum hafa valdið íbúum í sama húsi vanda og ónæði. Þeir hafa kvartað til bæjaryfirvalda í Kópavogi og Hafnarfirði sem ekki hafa tekið undir kvartanir. Eftir kæru íbúa í öðru húsinu keypti sá sem rekur úrræðið þau út úr húsinu.
Hið opinbera greiðir marga milljarða á ári til einkarekinna búsetuúrræða eins og fram kom í fréttaþættinum Kveik í lok október. Fjölskyldum í sömu húsum hefur brugðið mjög þegar svoleiðis starfsemi byrjar í húsinu.
Þriggja barna faðir sem býr í þríbýlishúsi í Kópavogi segist hafa orðið var við aukna umferð fólks í september í fyrra og var þá sagt að starfsemi hjá einreknu búsetuúrræði Hrafnkötlu væri hafin. „Þetta hefur verið oft og tíðum óþægilegt og skapað kvíða.“
