Íbúðin í Norðlingaholti mikið skemmd eftir brunann

Slökkvistarfi í Norðlingaholti í Reykjavík lauk um klukkan eitt í nótt en þá fóru síðustu viðbragðsaðilar af vettvangi.

Eldurinn kom upp í íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi á tólfta tímanum í gærkvöldi og var allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað til. Slökkviliðið var fljótt að ná stjórn á vettvangi og var búið að slökkva eldinn fyrir miðnætti. Þá var hafist handa við að reykræsta íbúðina.

Guðmundur Hreinsson, varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, staðfestir að einn hafi verið fluttur á slysadeild þar sem hann var skoðaður fyrir reykeitrun. Hann hafði komist út úr íbúðinni upp á eigin spýtur áður en slökkvilið bar að. Þá var hundi bjargað af svölum íbúðarinnar.

Á þessu stigi málsins segir Guðmundur að ekki sé vitað hver eldsupptökin voru. Hann getur ekki fullyrt um það hvort íbúðin sé ónýt en hún sé vissulega mikið skemmd.

129 útköll á sjúkrabíla

Að öðru leyti hafði slökkviliðið í nógu að snúast síðasta sólarhringinn. Alls voru 129 útköll á sjúkrabíla en þar af voru 58 forgangsverkefni. Næturvaktin ein og sér hefur sinnt 72 útköllum á sinni vakt. Þá voru dælubílar slökkviliðsins kallaðir út sjö sinnum, þar á meðal í Norðlingaholtið.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.