Rannsókn lögreglu á fimm innbrotum í fjögur framleiðslubú svína og alifugla í sumar miðar vel. Hinn grunaði hefur játað innbrotin en innbrot á minkabúið Dalsbú er enn óupplýst.
Þetta staðfestir Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður, hefur stigið fram opinberlega og játað á sig innbrot í svínabú Stjörnugríss. Hann birti myndband frá innbrotinu og aðstaða svínanna hefur verið gagnrýnd.
Meðal þeirra sem kallað hafa eftir rannsókn á aðstæðum svína hjá Stjörnugrís er félag iðnaðarmanna í matvæla- og veitingageiranum, MATVÍS.
Hjördís gat ekki staðfest að Einar Logi væri sá grunaði í málinu, en lögregla hafði áður greint frá því að maður á þrítugsaldri hafi játað innbrotin á sig.
Innbrotin sem sá hefur játað á sig eru fimm: tvö í svínabú Stjörnugríss, innbrot í alifuglabúið Reykjabú í Mosfelssdal og svo tvö innbrot sem lögregla hafði ekki vitneskju um fyrr en í rannsókn málsins. Þau hafa ekki verið nefnd en eru annars vegar alifuglabú og hins vegar svínabú, staðsett á Suðurlandi og Kjalarnesi.
Hjördís segir innbrotið í minkabúið Dalsbú enn til rannsóknar og óupplýst. Hún segist ekki geta tjáð sig hvort einhver sé grunaður um innbrotið.
