Vanilludropar merktir Bónus í þremur mismunandi umbúðastærðum hafa verið innkallaðir vegna óstaðfests gæðaflokks hráefnis í vörunni.
Innköllunin varðar allar best fyrir dagsetningar og því hafa allir vanilludropar merktir Bónus verið teknir úr sölu í verslunum Bónuss.
Ákvörðun um innköllun er tekin af Aðföngum, í samráði við Bónus og H-Berg ehf, með hliðsjón af velferð neytenda.
Upplýsingar um innköllun Bónus vanilludropa:
Vörumerki: Bónus
Vöruheiti: Bónus Vanilludropar
Nettómagn: 50ml glas, 500ml brúsi og 1 lítra brúsi
Umbúðir: Gler og plast.
Strikamerki: 5694311960143, 5694311960341, 5694311960150
Best fyrir dagsetning: Allar
Lotunúmer: Öll
Geymsluskilyrði: Þurrvara
Framleiðandi: Framleitt af H-Berg ehf. Í Hafnarfirði
Dreifing: Verslanir Bónus
Viðskiptavinum Bónus sem keypt hafa vöruna er ráðið frá því að nota hana og er bent á að þeir geta skilað henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.
„Aðföng biður viðskiptavini Bónus sem kunna að hafa orðið fyrir óþægindum vegna þessa innilegrar afsökunar,“ segir í tilkynningu.
