Íslendingar greinilega fræddir en ekki hræddir

Íslendingar ætla greinilega að vera viðbúnir en mikil söluaukning hefur verið á þeim hlutum sem mælt er með að eiga í bæklingnum Verum viðbúin sem almannavarnir gáfu út í byrjun mánaðarins. Bæklingnum er ætlað að stuðla að því að heimili og fjölskyldur séu undirbúin þegar óvæntar aðstæður skapast.

Í síðustu viku var greint frá því almenningur, sérstaklega eldra fólk, hefði tekið út reiðufé í stórum stíl og sumir háar upphæðir vegna upplýsinga í bæklingi almannavarna. Í gær var frétt um að geymsluþolinn matur hefði rokið út í matvöruverslunum. Í dag eru það svo rafmagnstækin sem hafa horfið úr hillum verslana.

„Við erum að sjá alveg svakalega aukningu á sölu á útvörpum, rafhlöðum og talstöðvum líka. Ég veit ekki hvort það tengist líka rjúpnatímabilinu en við erum allavega að sjá mikla aukningu,“ segir Arinbjörn Hauksson er forstöðumaður markaðssviðs Elko.

Hann segir einnig hafa verið söluaukningu á ákveðnum vörum á síðasta ári þegar Rauða krossinn fór af stað með átakið Þrír dagar, þar sem fólk var hvatt til að eiga viðlagakassa. Í honum átti meðal annars að vera útvarp, rafhlöður, kerti og eldspýtur. Salan núna sé þó ekkert í líkingu við það.

„Til dæmis bara útvörpin og ef við berum saman við árið í fyrra þar sem við vorum vissulega líka að leggja áherslu á viðlagakassann þá erum við að horfa á 300 prósent aukningu á sölu á svona litlum útvörpum milli ára sem er gríðarlegt. Við erum búin að selja það sem af er nóvember 700 útvörp sem falla í þennan flokk sem mælt er með í bæklingnum sem eru annaðhvort handknúin eða hand- og batteríknúin.“

Létu vita að von væri á bæklingnum

Runólfur Þórhallsson sviðsstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra segir að almannavarnir hafi haft samband við Samtök verslunar og þjónustu fyrir nokkru síðan og látið vita að von væri á bæklingnum.

„Þetta var að einhverju leyti viðbúið. Við vorum í góðu samskiptum við Norðurlöndin og heyrðum frá þeim að það hafi ekki verið nein stór áhlaup á búðir en það var auðvitað bara vöxtur í sölu og það var ástæðan fyrir því að við vildum gefa verslunum fyrirfram tíma til að bregðast við.“

Einhverjar vörur uppseldar

Þrátt fyrir að vera viðbúin fór salan langt fram úr öllum áætlunum Elko.

„Við eigum von á hraðsendingu frá birgja því eitthvað af þessu er orðið uppselt.“

Runólfur segir jákvætt að almenningur sé að bregðast svona við og huga að þeim atriðum sem mælt er með í bæklingnum. umlegacypress.com


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.