Segja má að vertíðarskil séu hjá síldveiðiflotanum. Veiðum úr norsk-íslenska síldarstofninum fer að ljúka og þá hefjast veiðar á íslenskri sumargotssíld.
Síldveiðin er sem sagt úr tveimur aðskildum stofnum. Annar þeirra hrygnir við Ísland um mitt sumar og dregur nafn sitt af því en í hinum stofninum er hrygningartíminn að vorlagi við Noreg. Veiðar á norsk-íslensku síldinni standa venjulega frá byrjun september fram í október-nóvember og í beinu framhaldi hefjast veiðar á íslensku sumargotssíldinni.
„Í heildina séð er þetta búin að vera fínasta vertíð“
Hjá Skinney Þinganesi á Hornafirði hefur síldveiðin staðið í tæpa tvo mánuði. Síðasta farminum af norsk-íslenskri síld var landað þar í gær og Ásgrímur Halldórsson SF hélt til veiða á íslensku sumargotssíldinni vestur í Faxadýpi. Ásgeir Gunnarsson, framkvæmdastjóri veiða hjá fyrirtækinu, segir að þaðan hafi borist fréttir af íslenskri síld.
„Við byrjuðum, löndum fyrst þarna um 10. september og þetta hefur bara verið sleitulaust síðan. Og þessi vertíð hefur gengið alveg þokkalega en þó að mörgu leyti verið nokkuð skrýtin. Það hefur blossað upp veiði í einn, tvo daga og svo lítið á milli. En reglulega hefur hún látið sjá sig þannig að svona í heildina séð er þetta búin að vera fínasta vertíð.“
Áhyggjuefni að íslenska síldin heldur austur á bóginn og blandast þeirri norsk-íslensku
Kvóti Íslendinga í norsk-íslensku síldinni var tæp 89 þúsund tonn en leyfileg veiði á íslensku síldinni er um 76 þúsund tonn. Og þótt formleg skil séu á veiðum úr þessum tveimur síldarstofnum, úr þeim norsk-íslenska yfir í þennan hreina íslenska stofn, hafa skipin veitt talsvert af íslenskri sumargotssíld það sem af er vertíð.
Síld úr báðum stofnum heldur sig nokkuð á svipuðum slóðum því íslenska síldin er í hálfgerðri hafvillu og hefur að hluta til yfirgefið fiskveiðilögsögu Íslands og blandast frænku sinni, þeirri norsk-íslensku. Norðmenn og Færeyingar hafa veitt sífellt meira af íslenskri sumargotssíld síðustu fjögur til fimm ár.
„Við höfum aðeins verið að sjá þetta undanfarin ár að íslenska síldin hefur verið að koma inn í veiðina en aldrei eins og núna. Þannig að þetta hentar okkur í sjálfu sér ágætlega því að það er styttra fyrir flest fyrirtæki að sækja hana hérna austur á bóginn þannig að við tökum hluta aflans á íslensku síldinni þar. En áhyggjuefnið er kannski það að íslenska síldin mögulega heldur austur á bóginn og út í haf með þeirri norsku og við höfum pínu áhyggjur af því.“
„Er þá þessi hrygningarstofn sem hefur hrygnt við Ísland að yfirgefa landhelgina“
„Nei, ekki viljum við nú meina það, ekki að minnsta kosti allur, en það er nú kannski frekar að ræða það við fiskifræðinga en okkur. En það er náttúrlega síld fyrir vestan og það er íslensk síld sem heldur sig hérna sunnar á svæðunum, á Papagrunni og fyrir sunnan það. Ég hef ekki trú á því að sú síld haldi austur í haf. En nákvæmlega hvað þetta gerir fyrir stofninn, ég ætla ekki að segja til um það, það er kannski annarra að svara því.
„En það er eins og þessi stofn að sé eitthvað að blandast öðrum?“
„Já, vissulega, alla vega á ákveðnum tíma. Í meira mæli heldur en verið hefur. Það hefur verið einhver blöndun en við höfum ekki séð eins mikla og núna.“
Íslensk sumargotssíld hefur að hluta til yfirgefið íslenska lögsögu og blandast síld úr norsk-íslenska síldarstofninum. Síldveiðiflotinn hefur aldrei fengið meira af íslensku síldinni við veiðar á þeirri norsk-íslensku austur af landinu.
Sýni tekin reglulega við veiðarnar til að meta hlutfall íslensku síldarinnar í aflanum
Um borð í hverju veiðiskipi eru tekin sýni úr síldinni eftir hvert hol, sem svo er kallað, og þá segir Ásgeir koma í ljós hvert hlutfall íslensku sumargotssíldarinnar er í þeirri norsk-íslensku. Þetta er nauðsynlegt að mæla því þarna er veitt úr sitt hvorum kvótanum og þetta hlutfall getur verið allt að helmingur aflans.
„Það er ekkert flókið fyrir þá sem kunna það, að sjá á milli, og norska síldin er almennt stærri. Hún er kannski 350 til 400 grömm meðan íslenska síldin er 280 til 340. Þeir þekkja þetta sem eru vanir að taka þessar prufur og svo er þessu fylgt eftir í landi á Fiskistofu og fylgst með hvort að þetta sýni sig svona sannarlega rétt. Þannig að menn halda vel utan um það,“ segir Ásgeir.
Lönd í Austur-Evrópu eru stærstu kaupendur síldar frá Íslandi
Uppsjávartegundirnar fjórar sem Íslendingar veiða; síld, loðna, makríll og kolmunni, eru unnar með afar misjöfnum hætti. Síldin þó á flesta vegu. Hún er ýmist fryst, söltuð eða brædd og þá heyrum við til dæmis um heilfrysta síld, kviðskorna síld, roðlaus síldarflök, samflök, flapsa og síldarbita. Allt eftir þörfum markaðarins. Langmest af síld frá Íslandi fer til Austur-Evrópu, Póllands og Úkraínu, og í Rússlandi var stór markaður fyrir síld áður en Rússar réðust inn í Úkraínu. Þá segir Ásgeir að fleiri Evrópulönd hafi bæst í hópinn og nefnir þar Frakkland meðal annars.
„Markaðir eru alveg þokkalegir og síldin er nú þannig að við erum að selja hana allt árið. Þetta er kannski öðruvísi en makríllinn og sérstaklega loðnan þar sem við tæmum nánast birgðir yfirleitt á skömmum tíma.“
„En síldin er aldrei jafn verðmæt og loðnan eða makríllinn eða hvað?“
„Nei, hún fer inn á aðra markaði og er öðruvísi en bæði makríllinn og loðnan. En verðin eru alveg ásættanleg núna og hafa verið það síðustu tvær vertíðar.“
