Stjórn Sorpu ákvað í október 2025 að byrja aftur að senda fernur til brennslu í stað þess að endurvinna þær.
Heimildin greinir frá og hefur eftir Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að sáralítið af fernum nýtist í nýjan pappír eins og fyrirkomulagi endurvinnslu þeirra er háttað núna. Mestur hluti þeirra fari til brennslu með orkunýtingu.
„Þótt brennsla á fernum með orkunýtingu sé ekki jafn ákjósanlegur kostur og endurvinnsla þá er hann skárri en urðun,“ sagði Jóhann Páll í Heimildinni.
Greint var frá því 2023, eftir umfjöllun Heimildarinnar, að langflestar fernur sem flokkaðar voru á Íslandi væru brenndar í sementsverksmiðjum á meginlandi Evrópu.
Sorpa baðst afsökunar á að hafa ekki greint með skýrum hætti frá því hvað yrði um drykkjarfernur sem borgarbúar flokkuðu. Stjórn Sorpu fól framkvæmdastjóra að breyta fyrirkomulaginu og senda pappírinn í flokkun í Svíþjóð.
Í júní 2023 lýstu Úrvinnslusjóður og Sorpa því yfir að ákveðið hefði verið, eftir fund með þáverandi umhverfisráðherra, að fá óháðan aðila til að fylgjast með og staðfesta fullnægjandi endurvinnslu ferna.
