Vinnueftirlitið hefur gert ítrekaðar athugasemdir við frágang á byggingu hótelturnsins við Skúlagötu. Götur hafa verið lokaðar kringum byggingarstaðinn árum saman og íbúar hafa kvartað.
Enginn græðir á því að bygging hótelsins sé stopp eins og verið hefur síðan á mánudag. Skuldir eru geysiháar eins og hótelið og aðalkröfuhafinn, Arion banki, vinnur að lausn.
Lokað fyrir bílaumferð um árabil
Vitastígur milli Skúlagötu og Lindargötu hefur verið lokaður fyrir bílaumferð um árabil. Ekki er heldur hægt að aka Skúlagötu milli Vitastígs og Barónsstígs því gatan er lokuð fyrir framan hótelið.
Borgin gaf út afnotaleyfi fyrir þessu en reyndar er aðeins talað um þrengingu á Skúlagötu á vef borgarinnar en ekki lokun. Leyfið kostar 800 þúsund krónur á ári. Ekki var hægt að fá upplýsingar hjá borginni í dag um hvort húsbyggjendur hefðu staðið í skilum. Gerðar eru kröfur um snyrtilega heilklædda vinnusvæðagirðingu. Líklega eru ekki allir sammála því að svo sé.Vinnueftirlitið hefur gert ítrekaðar athugasemdir við frágang á byggingu hótelturnsins við Skúlagötu. Allar framkvæmdir við turninn voru stöðvaðar á mánudaginn, eftir að Arion banka bárust upplýsingar sem bregðast þurfti við.
Íbúar ekki getað notað innkeyrslu mánuðum saman
Vinnueftirlitið hefur farið í átta vettvangsathuganir á byggingarstað á tveimur árum. Síðast var farið 6. október. Samtals hafa verið gerðar 19 athugasemdir og farið fram á úrbætur. Það hefur verið gert í öllum tilfellum segir í svari Vinnueftirlitsins. Lágt grindverk á sautjándu hæð turnsins virðist ekki traustvekjandi. Fallvarnir þar eru í lagi að mati eftirlitsins og handrið einn metri frá gólfi samkvæmt reglum.
Íbúar í nágrenninu eru margir orðnir langþreyttir á ónæðinu. Í fyrsta hvassviðrinu í haust kvörtuðu þeir til lögreglu yfir dinglandi vírum utan á byggingunni. Margir íbúanna búa í húsum sem byggjendur hótelsins Rauðsvík og Art-verk byggðu líka á sömu torfunni. Þeir hafa ekki geta notað innkeyrslu í bílakjallara mánuðum saman og fara bráðabirgðakrókaleið í staðinn. Lélegur frágangur og sóðaskapur er þó verst, segja þeir sem fréttastofa náði tali af.
