Jól í skókassa fanga hinn sanna jólaanda

Það er eins og ganga inn á verkstæði jólasveinanna að koma í húsakynni KFUM og KFUK við Holtaveg í Reykjavík þar sem verkefnið Jól í skókassa stendur sem hæst.

Jólagjafir í skókössum hafa verið sendar til Úkraínu í 23 ár. Fyrstu árin söfnuðust um 500 kassar en nú eru þeir taldir í þúsundum.

Það er einfalt að vera með og leggja sitt af mörkum.Efnalítil börn í Úkraínu hafa í áratugi fengið íslenskar skókassagjafir um jól. Verkefnið fangar hinn sanna jólaanda, segir sjálfboðaliði.

Fimm flokkar í hvern kassa

Óskað er eftir því að í hvern skókassa fari að minnsta kosti einn hlutur úr hverjum af þeim fimm flokkum sem beðið er um.

Flokkarnir eru skóladót, leikföng, hreinlætisvörur, föt og sælgæti.

Þegar búið er að fylla kassa er honum komið á skilastað. Allir kassarnir eru yfirfarnir og flokkaðir áður en þeir eru settir í gám.

Það er hægt að koma með kassa til klukkan fjögur á laugardag.

Systurnar Freyja, Brynja og Valgerður Gunnlaugsdætur komu með afa og ömmu að afhenda sína kassa.

Frestur fram á laugardag til að taka þátt

Á mánudaginn leggja gjafirnar af stað til Kirovohrad í Úkraínu, þar sem er mikið atvinnuleysi og fátækt. Þær fara til þeirra efnaminni, á munaðarleysingjaheimili og sjúkrahús,

Mjöll Þórarinsdóttir, sjálfboðaliði hjá Jólum í skókassa, segir verkefnið skipta sérstaklega miklu máli eftir að stríð braust út í Úkraínu.

„Að það er einhver að hugsa til þeirra, einhver að gefa þeim gleði. Bara smá svona hjarta.“

Er þetta sanni jólaandinn sem er í þessu?

„Jólin byrja ekki fyrr en eftir Jól í skókassa, eða um leið og Jól í skókassa byrja. Það eru jólin sko.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.