Einn var kærður fyrir líkamsárás og ofbeldi gegn lögreglumönnum í Reykjavík í dag og annar fyrir líkamsárás og hnífaburð. Fimm eru vistaðir í fangageymslum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Í þriðja málinu er einn kærður fyrir að stunda tilhæfulaus símtöl í neyðarnúmer lögreglu. Sá var kærður fyrir brot á lögum um samræmda neyðarsvörun og gabb.
Ekki fylgdu frekari upplýsingar um málin í tilkynningunni og ekki náðist í lögreglu við vinnslu fréttarinnar.
