Kaleo hélt óvænta tónleika á Ísafirði

Stuttu eftir hádegi á þriðjudag fór að kvisast út á kaffistofum á Ísafirði að það yrði eitthvað um að vera í Edinborgarhúsinu á miðvikudagskvöld.

Engar auglýsingar birtust á opinberum vettvangi en fréttirnar voru fljótar að kvisast út í bænum. Enginn varð útundan vegna aldurs því fyrr um daginn lék sveitin bæði á leikskóla og hjúkrunarheimilinu Eyri.

Kaleo stigu á svið um klukkan níu og þrátt fyrir að hvorki hefði heyrst hósti né stuna á opinberum vettvangi var húsið fullt af ísfirskum aðdáendum stórsveitarinnar.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.