Dýraverndarsamband Íslands kallar eftir auknu gagnsæi í svínahaldi og segir að það sé óásættanlegt að starfsemin sé svo lokuð að almenningur fái fyrst innsýn í aðbúnað dýranna þegar einstaklingur grípur til þess að brjótast inn til að afla myndefnis.
„Búrekstur sem ekki þolir dagsins ljós er rekinn á hæpnum forsendum. Almenningur á rétt á að vita við hvaða aðstæður dýr, sem alin eru til matvælaframleiðslu, lifa og hvernig komið er fram við þau. Gagnsæi og virkt eftirlit eru þar grundvallarforsendur. DÍS telur einnig brýnt að opinbert eftirlit með þessari starfsemi verði eflt,“ segir í yfirlýsingu frá samtökunum.
Framleiðslusjónarmið vegi þyngra en velferð dýra
Maður sem braust inn á svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesinu í maí birti myndband frá innbrotinu á Instagram í síðustu viku. Í myndskeiðinu sjást meðal annars dýr með sár, dauðir gríslingar og gylta að gjóta.
DÍS segir myndefnið varpa ljósi á alvarleg kerfisbundin vandamál sem geti skapast þegar „framleiðslusjónarmið fá meira vægi en velferð dýra“. Samtökin segja að brýnt sé að breyta áherslum í svínahaldi þannig að velferð þeirra verði í forgangi í stað þess að hámarka framleiðslu.
Sambandið bendir á að svínabændur hafi fengið viðbótarfrest til 1. janúar 2028 til að uppfylla kröfur reglugerðar um velferð svína.
„Í ljósi þess sem nú hefur komið fram telur sambandið fullt tilefni til að sá frestur verði endurskoðaður. Að lágmarki verður að liggja fyrir að viðbótarfresturinn sé endanlegur og að engar frekari undanþágur verði veittar.“
