Kannast ekki við að fleiri hugsi sér til hreyfings úr Viðreisn

Daði Már Kristófersson varaformaður Viðreisnar segir þingflokkinn standa geysilega þétt saman og kannast ekkert við orðróm um að fleiri hugsi sér til hreyfings eftir vistaskipti Ingvars Þóroddssonar. Þau séu þó mikil vonbrigði enda hafi atkvæði greitt Viðreisn ekki verið atkvæði greitt Sjálfstæðisflokki.

Við vistaskiptin missir þingflokkur Viðreisnar einn starfsmann en þingflokkur Sjálfstæðisflokks fær einn til viðbótar enda starfsmönnum úthlutað í krafti fjölda þingmanna.

„Meirihluti ríkisstjórnarinnar er að vísu mjög tryggur og við höldum áfram að vinna að okkar góðu málefnum í krafti þess þingstyrks sem við höfum en það er aldrei gott að missa úr liðinu,“ segir Daði Már.

Ingvar og Jón Gnarr, fyrrum þingmenn Viðreisnar, hafa gefið í skyn að fleiri brestir séu innan þingflokksins.

„Ég hef ekki hugmynd um hvað er verið að tala um. Er það virkilega þannig að þingflokkurinn stendur geysilega þétt saman og ég held það sé líka þannig að þegar gefur á bátinn þá þjappar það liðinu saman,“ segir hann.

Þannig að þú veist ekki til þess að einhverjir fleiri séu að hugsa sér til hreyfings?

„Alls ekki,“ segir Daði Már.

Frábiður sér ásakanir um trúnaðarbrest

Fyrr í dag sakaði Ingvar Þórunni Sveinbjarnardóttur forseta Alþingis um trúnaðarbrest á Alþingi fyrr í dag en forseti segist ekki hafa veitt upplýsingar um vistaskipti hans.

Vistaskipti Ingvars Þóroddssonar úr þingflokki Viðreisnar yfir í þingflokk Sjálfstæðisflokks voru enn til umræðu í dag þegar Ingvar sjálfur fór í ræðustól Alþingis og sakaði forseta þingsins um trúnaðarbrest.

Þórunn sagði í samtali við fréttastofu að hún frábiðji sér ásakanirnar sem hún segir að séu úr lausu lofti gripnar. Hún hafi átt fund með þingmanninum eftir að hann hafi tekið til máls á þingfundi í dag. Engin eftirmál verði vegna þess af hálfu forseta.

Ríkisstjórnarfundur var, venju samkvæmt, haldinn í Ráðherrabústaðnum í morgun og þar voru þessi vistaskipti ekki rædd með formlegum hætti. Formaður Flokks fólksins hefur ekki áhyggjur af meirihlutasamstarfinu enda geti þau treyst hundrað prósent á þá Jón Gnarr og Guðmund Inga Kristinsson sem áður höfðu sagt skilið við stjórnarflokkana.