Héraðssaksóknari hefur fellt niður mál á hendur fimm einstaklingum sem höfðu réttarstöðu sakbornings þegar Lúðvík Pétursson féll ofan í sprungu í Grindavík í janúar 2024.
Mbl.is greindi fyrst frá. Júlí Karlsson, aðstoðarsaksóknari hjá embætti héraðssaksóknara, staðfesti við Mbl.is að málið hefði verið fellt niður en vildi ekki afhenda greinargerð með rökstuðningi fyrir niðurstöðunni.
Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks, staðfestir að fjölskyldan hafi fengið tilkynningu um ákvörðunina fyrir nokkrum dögum. Fréttastofa náði hvorki í héraðssaksóknara né varahéraðssaksóknara við vinnslu fréttarinnar.
Lúðvík var við jarðvegsþjöppun í bænum þegar hann féll ofan í sprungu. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakaði málið.
Úlfar Lúðvíksson, þáverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, sagði rannsóknina hafa beinst að ákvæði 215. greinar almennra hegningarlaga, er varðar manndráp af gáleysi. Einnig hafi hún beinst að lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Fimm voru með réttarstöðu sakbornings í málinu. Mbl segir tvo hafa verið starfsmenn Náttúruhamfaratrygginga Íslands, tvo starfsmenn verkfræðistofunnar Eflu og einn verktaka hjá fyrirtækinu sem Lúðvík starfaði hjá.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hóf aftur leit að líki Lúðvíks í lok október. Leitin stóð yfir í sjö klukkustundir. Í tilkynningu frá lögreglu kom fram að engar vísbendingar hafi fundist sem gætu varpað ljósi á hvar líkamsleifar hans er að finna.
