Köfunarbílstjórinn flýgur í lögreglufylgd til Íslands á morgun

Sakborningum í haldi íslensku lögreglunnar í Straumsvíkurmálinu svokallaða fjölgar um einn á morgun, þegar tíundi maðurinn kemur hingað í lögreglufylgd með flugi frá Rúmeníu. Þetta herma heimildir fréttastofu.

Maðurinn kom hingað með farþegaferjunni Norrænu í fyrri hluta júnímánaðar, á sendiferðabíl fullum af köfunarbúnaði. Þetta var fáeinum vikum áður en hinir sakborningarnir notuðu búnaðinn til að kafa eftir 106 kílóum af kókaíni sem falin voru í sjókistu búlgarska súrálsskipsins Koznitza, þar sem það lá við bryggju í Straumsvíkurhöfn.

Í millitíðinni var bílstjórinn hins vegar floginn úr landi. Lögreglan hafði fylgst með ferðum hans hér en leyfði honum að fara til að stofna aðgerðinni ekki í hættu.

Eftir að hinir níu voru handteknir var svo alþjóðleg handtökuskipun gefin út á hendur bílstjóranum. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var hann handtekinn í Rúmeníu fyrir nokkrum vikum og kemur sem áður segir til Íslands á morgun. Þá mun lögregla fara fram á gæsluvarðhald yfir honum.

Ekki víst að hægt verði að sameina málin

Ákæra var gefin út á hendur níumenningunum um miðjan september. Þrír mannanna eru brasilískir, þeirra á meðal tveir kafarar, tveir eru rúmenskir og þrír íslenskir. Íslendingarnir þrír eru ákærðir fyrir að taka á móti þrjátíu af kílóunum 106.

Áætlað er að aðalmeðferð í málinu hefjist í Héraðsdómi Reykjaness 2. desember og standi í sex daga. Þangað til eru þrjár vikur. Ekki liggur fyrir hvort unnt verður að rétta yfir bílstjóranum í leiðinni. Fyrst þarf að taka af honum skýrslur og ljúka rannsókn á hans þætti málsins, gefa út ákæru og fyrst þá yrði hægt að leita eftir samþykki fyrir því að sameina málareksturinn fyrir dómi.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.