Greiðslustöðvun ítalsks verktakafyrirtækis sem Kópavogsbær hefur krafið um fjóra milljarða króna vegna ætlaðra vanefnda á samningi um byggingu grunnskóla Kársness var ekki meginástæða þess að Kópavogsbær sendi út fréttatilkynningu um deiluna við verktakann í október. Þetta kemur fram í svörum frá Kópavogsbæ við spurningum fréttastofu.
Sveitarfélagið lét þess ekki getið í fréttatilkynningu um kröfugerðina í síðasta mánuði að ítalska verktakafyrirtækið væri í greiðslustöðvun. Ítalski verktakinn heitir Rizzani og byggði grunnskólann að hluta áður en Kópavogsbær rifti samningi við hann. Bærinn segir í svörunum að opinberar upplýsingar um greiðslustöðvunina hafi legið fyrir opinberlega meðal annars á heimasíðu ítalska verktakafyrirtækisins.
Fréttastofa spurði Kópavogsbæ um greiðslustöðvun verktakafyrirtækisins og fréttatilkynninguna í tengslum við frétt um greiðslustöðvunina sem birt var nú í nóvember. Kópavogsbær sækir fullar heimtur vegna vanefnda verktakans við byggingu barnaskólans sem leiddu til þess að byggingin fór langt fram úr kostnaðaráætlun. Skólinn endaði á að kosta rúmlega níu milljarða en átti að kosta tæplega helminginn af þessari upphæð.
Athygli vakti að það ekki var sagt frá greiðslustöðvun ítalska verktakans í fréttatilkynningu bæjarins og þess vegna spurðist fréttastofa fyrir um þetta. Greiðslustöðvun verktakans mun að öllum líkindum hafa áhrif á það hversu mikið Kópavogsbær fær upp í þessa fjögurra milljarða króna króna kröfu, líkt og kemur fram í svörum frá sveitarfélaginu sem birt eru hér í heild sinni ásamt spurningum fréttastofu.
Forsendur bæjarins til að fá greitt frá verktakanum eru því allt aðrar en ef ítalska fyrirtækið hefði ekki farið í greiðslustöðvun.
Af hverju sagði sveitarfélagið ekki frá því í fréttinni um þessa kröfugerð að ítalska félagið væri í greiðslustöðvun? Þetta hefur áhrif á mögulegar endurheimtur og mjög líklegt að þær verði ekki fullar.
„Fréttatilkynning Kópavogsbæjar var send út í tilefni þess að sama dag var heildarkröfugerð sveitarfélagsins á hendur Rizzani vegna vanefnda og verktakaskipta kynnt í fyrsta sinn í bæjarráði. Kröfugerðin hafði verið lögð fram tveimur dögum fyrr við fyrirtöku gerðardómsmálsins gegn Rizzani.
Fjárhagserfiðleikar Rizzani og greiðslustöðvanir fyrirtækisins höfðu hins vegar verið til umfjöllunar í bæjarráði um nokkurt skeið og upplýsingar um þau atriði voru jafnframt aðgengilegar á opinberum vettvangi, meðal annars á vef fyrirtækisins. Þær upplýsingar voru því ekki meginástæða fréttatilkynningarinnar á þessum tímapunkti. Tilefni hennar var fyrst og fremst að upplýsa um kröfugerð Kópavogsbæjar og þá hagsmunagæslu sem sveitarfélagið hafði með henni að leiðarljósi.“
Í máli lögmanns Kópavogsbæjar kemur fram að óljóst sé hversu mikið fáist upp í þessar kröfur. Hvert er mat bæjarstjóra á þessari stöðu og er hún ósátt við þessa stöðu? Þetta virðist vera tapað fé fyrir bæinn þó óljóst sé að hversu miklu leyti.
„Krafa Kópavogsbæjar á hendur Rizzani hefur verið lögð fram fyrir gerðardómi, en málsmeðferð er enn ólokið. Þegar niðurstaða liggur fyrir um fjárhæð kröfunnar tekur við innheimta hennar. Við erum að krefjast þess að krafan fáist greidd að fullu og teljum að bænum hafi tekist að gera með skýrum hætti grein fyrir þeim kostnaði sem hann varð fyrir vegna vanefnda verktakans. Mikilvægt er þó að hafa í huga að sá kostnaður hefur þegar verið gjaldfærður í reikningum bæjarins og þar hafa ekki verið færðar væntar bætur eða tekjur vegna kröfunnar.
Það er engin leynd yfir því að Rizzani hefur glímt við verulega fjárhags- og greiðsluerfiðleika um árabil. Við gerð verksamningsins lagði félagið fram verktryggingu og stóðst á þeim tíma fjárhagslegt hæfnismat samkvæmt gildandi lögum og útboðsgögnum. Félagið átti sér jafnframt um 190 ára rekstrarsögu og hafði tekið að sér verkefni víða um heim. Það voru því vonbrigði þegar fjárhagsstaða þess fór að versna. Sú þróun hefur eðlilega áhrif á mat á möguleikum bæjarins á að innheimta kröfuna. Á þessu stigi málsins er þó ekki unnt að leggja nákvæmt mat á þær líkur.“
Á bærinn í einhverjum samskiptum við ítalska félagið út af þessu máli?
„Þann 16. desember 2025 viðurkenndi ítalskur dómstóll gildi fyrri hluta gerðardómsmeðferðarinnar á Íslandi, sem laut að lögmæti riftunar verksamningsins. Í kjölfarið voru sendar beiðnir til ítalskra yfirvalda um fjárnám og kyrrsetningu bankareikninga félagsins. Vegna greiðslustöðvunaraðgerða hafa þær aðgerðir þó ekki enn komið til framkvæmda og bíða afgreiðslu. Samskipti við félagið fara fram innan ramma þessa málsferlis á Ítalíu og þeirrar gerðardómsmeðferðar sem nú stendur yfir á Íslandi.“
