Krefjast aðgerða gegn hatursorðræðu og fordæma þjóðarmorð á Gaza

Flokksráðsfundur VG fordæmir hatursorðræðu og hvers kyns niðurlægingu, mismunun eða ógnir sem beinast gegn fólki meðal annars vegna uppruna, hörundslitar, kyns, kynhneigðar, kynvitundar, kyntjáningar, fötlunar eða trúar. Þetta kemur fram í ályktun fundarins. Fundurinn krefst þess að stjórnvöld fari í sértækar aðgerðir til að uppræta hatursorðræðu og að lagaákvæði þar að lútandi í almennum hegningarlögum sé fylgt eftir af festu.

Flokksráðsfundurinn harmar ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að draga úr stuðningi við óhagnaðardrifið húsnæði. „Hátt húsnæðisverð, okurleiga og háir vextir þrengja að heimilum, ekki síst að ungu fólki, barnafjölskyldum og tekjulágum. Ríki og sveitarfélög verða að tryggja nægt framboð af öruggu húsnæði á viðráðanlegu verði,“ segir í ályktuninni. Fundurinn lýsir jafnframt yfir áhyggjum af því að dregið sé úr fjármögnun til loftslagsmála, náttúruverndar, orkuskipta og nýsköpunar.

„Við erum sá flokkur sem talar mest og skýrast fyrir umhverfismálum og grænni pólitík,“ segir Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður VG. „Við erum líka sá flokkur sem talar háværast fyrir friðarstefnu.“

Ályktun flokksráðsfundar VG

Ályktun gegn hatursorðræðu

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 8. nóvember 2026, fordæmir hatursorðræðu og hvers kyns niðurlægingu, mismunun eða ógnir sem beinast gegn fólki meðal annars vegna uppruna, hörundslitar, kyns, kynhneigðar, kynvitundar, kyntjáningar, fötlunar eða trúar. Allt fólk á jafnan rétt á virðingu, öryggi og þátttöku í samfélaginu. Aðgerðir gegn hatursorðræðu verði unnar í samráði við þá hópa sem hún beinist gegn og tryggi þolendum aðgengilegan stuðning.

Fundurinn hvetur stjórnvöld, fjölmiðla, samtök og almenning til að standa gegn fordómum og hatri og sýna þeim sem verða fyrir slíku ótvíræðan stuðning. Sérstök ábyrgð hvílir á kjörnum fulltrúum og öðru áhrifafólki að ala ekki á tortryggni og fjandskap í garð einstakra hópa.

Fundurinn krefst þess að stjórnvöld fari í sértækar aðgerðir til að uppræta hatursorðræðu og að lagaákvæði þar að lútandi í almennum hegningarlögum sé fylgt eftir af festu.

Ályktun til stuðnings palestínsku þjóðinni

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 8. nóvember 2026, ítrekar afdráttarlausan stuðning sinn við palestínsku þjóðina og fordæmir þjóðarmorðið á Gaza og stríðsglæpi sem felast í áframhaldandi hernaðaraðgerðum Ísraels og ofbeldi landránsmanna á Vesturbakkanum. Ísraelsher heldur hlífiskildi yfir þeim þrátt fyrir að á milli 120 og 200 Palestínumenn hafi verið drepnir þar af ólöglegu ísraelsku landtökufólki frá því í október 2025.

Þó að yfirlýst vopnahlé standi yfir heldur ofbeldi áfram gegn íbúum Gaza. Samkvæmt skýrslu UNICEF hafa um 300 börn verið drepin á Gaza frá því vopnahléið tók gildi í október í fyrra. Heildarfjöldi barna sem hafa fallið eða særst í hernaðinum á Gaza frá upphafi deilunnar í október 2023 er því kominn yfir 64.000. Þessi síendurteknu brot á vopnahléi milli Ísraels og Palestínu eru ólíðandi sem og síendurtekið ofbeldi í garð Palestínumanna á Vesturbakkanum.

Flokksráðsfundur Vinstri grænna krefst þess að íslensk stjórnvöld fylgi fordæmingum á alþjóðavettvangi eftir með raunverulegum aðgerðum. Hörð orð og fordæmingar duga ekki til að stöðva ísraelsk stjórnvöld sem ætla sér að halda áfram útrýmingu á palestínsku þjóðinni. Ísraelsk stjórnvöld vanvirða alþjóðalög og sáttmála og skeyta engu þótt tugþúsundir barna og almennra borgara hafi verið drepin með köldu blóði. Þessi staðreynd hefur loks verið að renna upp fyrir sífellt fleiri þjóðarleiðtogum.

Vinstri græn krefjast þess að íslensk stjórnvöld sýni andstöðu sína við stríðsglæpi Ísraels í verki, ekki aðeins í orði. Fundurinn krefst þess að Ísland banni innflutning á vörum frá hernumdu svæðunum og Ísrael og beiti sér fyrir markvissum efnahagsþvingunum með öðrum ríkjum gagnvart Ísrael. Ísland nýti stöðu sína í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna og alþjóðlegu samstarfi í hvívetna til að verja réttindi palestínsku þjóðarinnar og til að sýna raunverulega andúð á stríðsglæpum í verki. Ísland verður að standa með alþjóðalögum, alþjóðastofnunum, mannréttindum og rétti palestínsku þjóðarinnar til frelsis, friðar, sjálfsákvörðunar og eigin ríkis.

Fundurinn krefst þess jafnframt að tryggður verði óhindraður aðgangur mannúðaraðstoðar að Gaza og vernd almennra borgara, fjölmiðlafólks og hjálparstarfsfólks. Ísland auki stuðning sinn við neyðaraðstoð við palestínsku þjóðina.

Stjórnmálaályktun flokksráðsfundar Vinstri grænna

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 8. nóvember 2026, lýsir yfir þungum áhyggjum af efnahagsstefnu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Þrátt fyrir yfirlýsingar um ábyrga hagstjórn og bætt lífskjör, blasir við stefna aðhalds, niðurskurðar og skerðingar á opinberri þjónustu. Í stað þess að beita ríkisfjármálum gegn atvinnuleysi, verja réttindi launafólks og draga úr ójöfnuði, dregur ríkisstjórnin úr fjárfestingum í mikilvægum innviðum, félagslegu öryggisneti og umhverfismálum.

Fundurinn minnir á að efnahagsstefna endurspeglar pólitíska forgangsröðun: hverjir njóta ávinningsins og hverjir bera kostnaðinn. Ríkisstjórnin setur þröng afkomumarkmið í forgang, þó það komi niður á velferð, jöfnuði og framtíðarfjárfestingum. Slík stefna er pólitískt val.

Flokksráðsfundur Vinstri grænna hafnar þeirri hugmyndafræði að ábyrg fjármálastjórn felist fyrst og fremst í niðurskurði, veikingu grunnþjónustu og aukinni kostnaðarbyrði á heimilin. Árangur í efnahagsmálum verður að meta út frá lífskjörum fólks, félagslegum stöðugleika, jöfnuði og sjálfbærni til framtíðar, ekki eingöngu út frá tölum á blaði.

Niðurskurður á kostnað heimilanna og velferðarinnar

Íslensk heimili búa við mikla vaxtabyrði, háan húsnæðiskostnað og þrýsting á ráðstöfunartekjur. Á sama tíma dregur ríkisstjórnin úr stuðningsúrræðum við heimilin, eykur greiðsluþátttöku fyrir og breytir ekki persónuafslætti eða þrepamörkum í þágu launafólks, svo fjárhagsleg byrði launafólks þyngist.

Þegar stuðningur minnkar og gjaldtaka hækkar fyrir komu á heilsugæslu og í endurhæfingu, bitnar það harðast á þeim sem minnst hafa milli handanna. Flokksráðsfundur Vinstri grænna leggur áherslu á að heilbrigðisþjónusta, menntun og félagslegur stuðningur séu grundvallarréttindi sem eiga ekki að velta á greiðslugetu fólks.

Niðurskurður veikir samfélagið

Á meðan hagkerfið kólnar og atvinnuleysi er viðvarandi, dregur ríkisstjórnin úr opinberum umsvifum og segir upp starfsfólki. Slík stefna er varhugaverð því hún getur dýpkað efnahagslegan samdrátt, dregið úr atvinnuöryggi og veikt samfélagslega innviði sem eru forsenda verðmætasköpunar og velsældar.

Opinberar fjárfestingar í heilbrigðisþjónustu, samgöngum, menntun og öðrum innviðum eru fjárfesting í lífsgæðum, atvinnu og framtíð samfélagsins. Fundurinn telur það vera skammsýni að fresta slíkum verkefnum í nafni skammtímasparnaðar.

Fundurinn mótmælir harðlega grimmum niðurskurði og uppsögnum sem einkenna aðgerðir hægrimeirihlutans í Reykjavíkurborg og gagnrýnir aðför að viðkvæmri grunnþjónustu, áform um útvistun hennar og sölu innviða í almannaeigu. Ekki hefur verið sýnt fram á hvernig slíkar aðgerðir bæti þjónustu við borgarbúa. Uppsagnir og niðurskurður grafa undan opinberri þjónustu, starfsöryggi og stuðningi við börn og fólk í viðkvæmri stöðu.

Vinstri græn standa með opinberum starfsmönnum og minna á að velsæld og öryggi borgaranna velta á vandaðri þjónustu ríkis og sveitarfélaga.

Húsnæðisöryggi og græn framtíð

Hátt húsnæðisverð, okurleiga og háir vextir þrengja að heimilum, ekki síst að ungu fólki, barnafjölskyldum og tekjulágum. Ríki og sveitarfélög verða að tryggja nægt framboð af öruggu húsnæði á viðráðanlegu verði. Flokksráðsfundurinn harmar ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að draga verulega úr stuðningi við óhagnaðardrifið húsnæði um sem nemur 3 milljörðum króna. Aðgangur fólks að öruggu húsnæði er mannréttindi og má ekki víkja fyrir arðsemiskröfu markaðarins. Fundurinn áréttar að byggja þarf upp með sambærilegum hætti almenna eignakerfið að fyrirmynd Verkamannabústaðanna svo fólk geti eignast góðar og hagkvæmar íbúðir.

Fundurinn lýsir jafnframt yfir áhyggjum af því að dregið sé úr fjármögnun til loftslagsmála, náttúruverndar, orkuskipta og nýsköpunar. Græn umbreyting er forsenda sjálfbærrar verðmætasköpunar, fjölbreytts atvinnulífs og samfélagslegs öryggis í sátt við umhverfi og náttúru. Sama gildir um stuðning við menningu, listir, menntun og vísindi sem eru grunnstoðir skapandi samfélags, ekki gæluverkefni.

Önnur efnahagsstefna er möguleg – fyrir fólk og náttúruna

Flokksráðsfundur Vinstri grænna telur að ábyrg opinber fjármál og félagslegt réttlæti fari vel saman. Endurskoða þarf efnahags- og fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar með áherslu á aukinn jöfnuð og vernd grunnþjónustu.

Skattheimta verður að vera réttlát þannig að tekjuhærri hópar samfélagsins leggi stærri skerf til samfélagsins. Taka þarf djarfari skref til réttlátari tekjuöflunar ríkissjóðs í stað þess að velta auknum byrðum á þau sem minnst hafa svigrúm. Þá minnir fundurinn einnig á mikilvægi þess að útsvar sé lagt á fjármagnstekjur og tryggi þannig að hin efnameiri taki þátt í samneyslunni og leggi til nærsamfélagsins.

Draga þarf úr atvinnuleysi með markvissum úrræðum, sérstaklega fyrir ungt fólk, og styrkja opinbera þjónustu í stað þess að veikja hana, tryggja starfsöryggi og bæta starfsskilyrði opinberra starfsmanna. Auka þarf opinberar fjárfestingar í óhagnaðardrifnu húsnæði, heilbrigðisþjónustu, menntun og almenningssamgöngum og tryggja að aðgangur að grunnheilbrigðisþjónustu ráðist ekki af fjárhagsstöðu fólks. Auka þarf fjárveitingar í loftslagsaðgerðir og náttúruvernd og efla fjárfestingar í réttlátum orkuskiptum og grænni nýsköpun.

Raunverulegur árangur opinberra fjármála felst ekki í því hversu hratt er hægt að skera niður eða ná afgangi á ríkissjóði, heldur í bættum lífskjörum, auknum jöfnuði, öflugri grunnþjónustu, öruggu húsnæðisframboði og sjálfbæru atvinnulífi í sátt við græna uppbyggingu náttúru og umhverfis. Vinstri græn styðja við efnahagsstefnu sem setur fólk og náttúru í forgang og tryggir að ávinningur verðmætasköpunar skiptist með réttlátum hætti. Þannig byggjum við upp samfélag sem fjárfestir í framtíðinni.

Náttúruvernd og loftslagsaðgerðir í forgang

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs lýsir yfir þungum áhyggjum af metnaðarleysi ríkisstjórnar og ráðherra umhverfismála í umhverfis- og loftslagsmálum. Á sama tíma og loftslagsvá og hnignun líffræðilegrar fjölbreytni kalla á tafarlausar, skýrar og róttækar aðgerðir virðist ríkisstjórnin setja skammtímahagsmuni atvinnulífs og sérhagsmunaaðila ofar vernd náttúru og almannahagsmunum.

Vinstri græn hafna þess háttar forgangsröðun. Náttúran getur ekki verið til ótakmarkaðrar nýtingar á forsendum markaðarins. Hún er undirstaða lífsgæða, velferðar og framtíðar komandi kynslóða. Náttúruvernd og vernd loftslags verða að vera leiðarljós í stefnumótun stjórnvalda.

Ríkisstjórnin verður að efna loftslagsskuldbindingar

Fundurinn gagnrýnir aðgerðarleysi stjórnvalda í loftslagsmálum og fyrirhugaðan niðurskurð til Loftslags- og orkusjóðs um 3,2 milljarða króna milli ára. Það er óásættanlegt að draga úr fjármagni til loftslagsmála á sama tíma og þörfin fyrir markvissar aðgerðir hefur aldrei verið brýnni. Ísland verður að standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar með fjármögnuðum og tímasettum aðgerðum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Kolefnisjöfnun og bókhaldslausnir koma ekki í stað raunverulegs samdráttar í losun.

Horft hefur verið fram hjá þætti kjötneyslu þegar kemur að losun gróðurhúsalofttegunda og lýðheilsu, líkt og norrænu næringarráðleggingarnar frá 2023 kveða á um. Stjórnvöld þurfa að móta stefnu um samdrátt í kjötneyslu og auðvelda fólki að velja fæði úr jurtaríkinu, meðal annars með eflingu innlendrar framleiðslu.

Náttúran framar sérhagsmunum

Fundurinn hafnar því að náttúruvernd sé látin víkja fyrir gróðavon orkufyrirtækja, sjókvíaeldisfyrirtækja eða orkufreks iðnaðar á borð við gagnaver. Orkuskipti eru nauðsynleg en réttlæta ekki óhefta virkjanaframkvæmd eða óafturkræf inngrip í verðmæt náttúrusvæði. Flokksráðið lýsir yfir þungum áhyggjum af áformum um stórfellda röskun víðerna vegna vindorkuvera án skýrrar heildarstefnu eða alvöru samráðs við almenning og heimafólk.

Vinstri græn krefjast þess að orkusparnaður og bætt orkunýtni verði sett í forgang í orkustefnu stjórnvalda. Ákvarðanir um nýja orkuvinnslu verða að byggjast á faglegu mati, gagnsæi og varúðarsjónarmiðum. Virða verður Rammaáætlun en ekki ganga um hana af geðþótta líkt og núverandi stjórnvöld hafa gert. Náttúran á alltaf að njóta vafans.

Vinstri græn standa vörð um að orkufyrirtæki á borð við Landsvirkjun séu í eigu þjóðarinnar og andmæla öllum hugmyndum um sölu á hlut þess eða einkavæðingu að hluta eða að öllu leyti. Endurvekja þarf traust til fyrirtækisins sem hefur verið fyrirgert á undanförnum vikum. Ríkisfyrirtæki eins og Landsvirkjun ber að reka í almannaþágu og það verður að lúta lýðræðislegri stjórn sem iðkar gagnsæ vinnubrögð í þágu eigenda sinna: almennings á Íslandi. Við skipan í stjórnir opinberra fyrirtækja þarf að tryggja að fjölbreytt sjónarmið eigi sæti við borðið, þar á meðal náttúruverndarsjónarmið, og að ákvarðanir séu ekki eingöngu teknar út frá markaðslegum forsendum heldur almannahagsmunum. Fundurinn krefst þess að fjármálaráðherra virði Alþingi og skýri þinginu satt og rétt frá um málefni sem snúa að stjórn og stjórnun Landsvirkjunar.

Líffræðileg fjölbreytni í hættu

Ný aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni er skref í rétta átt en metnaður hennar er algerlega óviðunandi. Skortur er á heildstæðum aðgerðum fyrir lykilatvinnuvegi. Styrkja þarf lagalega umgjörð og uppfylla skuldbindingar um vernd vistkerfa og líffræðilegrar og jarðfræðilegrar fjölbreytni. Friðlýsingaráform eru ófullnægjandi og stjórnvöld hafa ekki sýnt nægan vilja í verki til að tryggja vernd hafsins, fjarða og viðkvæmra vistkerfa. Flokksráðið krefst þess að náttúruvernd verði sett í forgang með raunhæfum markmiðum, öflugri lagaumgjörð og fjármögnuðum aðgerðum.

Aðbúnaður svína á íslenskum verksmiðjubúum

Fundurinn lýsir þungum áhyggjum vegna myndefnis og frétta um aðbúnað svína á íslenskum verksmiðjubúum. Velferð dýra verður að ganga framar gróðasjónarmiðum. Fundurinn krefst þess að reglur um dýravelferð verði hertar, undanþágur sem skerða velferð dýra afnumdar og tryggt verði að öflugu eftirliti sé fylgt eftir með raunverulegum úrbótum.

Lýðræði og félagslegt réttlæti eru grunnur grænna umskipta

Ákvarðanir um nýtingu og vernd náttúruauðlinda verða að byggjast á raunverulegu lýðræðislegu samráði við heimafólk og náttúruverndarsamtök. Náttúruvernd varðar samfélagið allt og komandi kynslóðir. Almenningur á rétt á upplýsingum og aðkomu að ákvörðunum sem varða náttúru, samfélag og framtíð byggðanna. Tryggja þarf að kostnaður við græn umskipti dreifist með sanngjörnum hætti og leggist ekki þyngst á þau sem minnst hafa ráð. Tryggja þarf almenningi raunhæfa möguleika til orkuskipta, til sjálfbærra samgangna og þátttöku í grænum atvinnu- og nýsköpunartækifærum um allt land. Byggðaþróun ber að styðjast við sjálfbærni og sátt við náttúru og samfélag.

Vinstri græn hafna því að umhverfisvernd og félagslegt réttlæti séu sett upp sem andstæður. Raunveruleg réttlát umskipti byggjast á hvoru tveggja.

Vinstri græn – skýr rödd fyrir náttúruna

Flokksráð Vinstri grænna krefst þess að ríkisstjórnin taki raunverulega ábyrgð á vernd náttúru og loftslags. Það þarf meira en yfirlýsingar og aðgerðaáætlanir á pappír: það þarf pólitískan vilja, fjármuni og raunverulegar framkvæmdir. Vinstri græn munu áfram berjast fyrir metnaðarfullum loftslagsaðgerðum, sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda og vernd líffræðilegrar fjölbreytni.

Áhrif öfgahægriafla og ógnandi hugmyndafræði

Flokksráðsfundur lýsir yfir þungum áhyggjum af áhrifum öfgahægriafla og hugmyndafræði sem ógnar lýðræði, mannréttindum og samstöðu. Víða um heim hafa öfgahægriflokkar og -hreyfingar fest sig í sessi. Þar fara saman pólitískir hagsmunir tækniauðjöfra, öfgafullra þjóðernissinna og trúarlegra afturhaldsafla sem fela í sér grundvallarógn við lýðræðið. Efnahagslegt og pólitískt vald fléttast saman við aukinn ójöfnuð.

Öfgahægriöfl beina ótta og reiði fólks vegna samfélagslegra og vistfræðilegra breytinga gegn innflytjendum og minnihlutahópum, fremur en að valdakerfunum sem viðhalda ójöfnuði. Upplýsingaóreiða, samþjöppun efnahagslegs og pólitísks valds, síaukinn ójöfnuður, stríðsátök og afleiðingar þeirra sem og minnkandi lýðræðislegt aðhald grefur jafnframt undan getu samfélaga til að takast sameiginlega á við áskoranir sem tengjast uppgangi öfgahægriafla.

Ísland stendur ekki utan þessara strauma. Fundurinn leggur áherslu á að baráttan gegn öfgahægrinu snúist ekki aðeins um að hafna fordómum og hatursorðræðu, heldur einnig um að verja og styrkja lýðræðislegar stofnanir, draga úr samþjöppun auðs og valda, tryggja félagslegt réttlæti og jöfnuð og efla samstöðu fólks.

Bregðast þarf við með menntun og fræðslu og hvetur fundurinn stjórnvöld til að vinna markvisst að fræðslu, sérstaklega til ungs fólks, um hvers kyns fordóma og hættulegar afleiðingar þeirra og hættuna á sundrandi hugmyndafræði sem elur á hatri og getur haft hrikalegar afleiðingar.

Framtíð fjölbreyttara og friðsamlegra samfélags verður ekki tryggð með því að útiloka hópa frá menningarlegum, félagslegum og efnahagslegum gæðum eða grafa undan minnihlutahópum og réttindum þeirra og tilveru. Framtíðin á að mótast af sameiginlegri ábyrgð okkar á samfélaginu, umhverfinu og því að tryggja frið, jöfnuð og réttlæti.

Í ályktuninni ítrekar fundurinn afdráttarlausan stuðning sinn við palestínsku þjóðina og fordæmir þjóðarmorðið á Gaza og stríðsglæpi sem felast í áframhaldandi hernaðaraðgerðum Ísraels og ofbeldi landránsmanna á Vesturbakkanum, og krefst þess að íslensk stjórnvöld fylgi fordæmingum á alþjóðavettvangi eftir með raunverulegum aðgerðum. „Hörð orð og fordæmingar duga ekki til að stöðva ísraelsk stjórnvöld sem ætla sér að halda áfram útrýmingu á palestínsku þjóðinni,“ segir í ályktuninni.

Þess er krafist að Ísland beiti sér fyrir markvissum efnahagsþvingunum með öðrum ríkjum og banni innflutning á vörum frá Ísrael. Mikilvægt sé að tryggja aðgang mannúðaraðstoðar að Gaza og vernd almennra borgara, fjölmiðlafólks og hjálparstarfsfólks.

Aðbúnaður svína áhyggjuefni

Fundurinn lýsir enn fremur þungum áhyggjum vegna myndefnis og frétta um aðbúnað svína á íslenskum verksmiðjubúum og krefst þess að reglur um dýravelferð verði hertar, undanþágur sem skerða velferð dýra afnumdar og að öflugu eftirliti verði fylgt eftir með raunverulegum úrbótum. „Velferð dýra verður að ganga framar gróðasjónarmiðum,“ segir í ályktun fundarins.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.