Krefur Útlendingastofnun skýringa vegna allmargra kvartana

Umboðsmaður Alþingis hefur krafið Útlendingastofnun upplýsinga um og skýringa á meðalmálsmeðferðartíma hjá stofnuninni.

Í erindi umboðsmanns segir að honum hafi borist allmargar kvartanir um tafsama málsmeðferð Útlendingastofnunar (ÚTL). Þar segir að í skýringum ÚTL, í þeim tilfellum sem þeirra hafi verið óskað, hafi verið vísað til mikilla anna og af því verði ráðið að tafirnar séu jafnan almennar og ekki bundnar við einstök mál.

Umboðsmaður gerir meðal annars athugasemd við að á vefsíðu ÚTL virðist upplýsingar um meðalmálsmeðferðartíma aðeins miðaðar við samþykktarumsóknir. Umboðsmaður óskar eftir því að gerð sé grein fyrir því hvort þetta sé rétt og þá hvort stofnunin telji slíkar upplýsingar til þess fallnar að veita raunsanna mynd af málsmeðferðartíma.

Upplýsinga- og skýringabeiðni umboðsmanns er alls í sjö liðum og snýr einnig, meðal annars, að því hvers vegna munur er á þeim tíma sem umsóknir berast þar til þær eru teknar til meðferðar, og verklag er varðar tilkynningar til umsækjenda um fyrirsjáanlegar tafir.

Loks er þess óskað að ÚTL lýsi afstöðu sinni til þess í hvaða horfi málshraði hjá stofnuninni sé almennt. Telji stofnunin þörf á úrbótum er þess óskað að upplýst sé hvort gripið hafi verið til aðgerða og þá hverra.

Umboðsmaður sendi erindið 20. október og veitti stofnuninni frest til 5. nóvember til að svara því.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.