Lækkun styrks talin hafa ýtt undir fleiri nýskráningar

Sala nýrra bíla tók kipp í október og hafði aukist nokkuð næstu tvo mánuði á undan. Ástæðan er helst rakin til lækkunar á styrk Orkusjóðs til rafbíla. Alls voru seldir sex hundruð nýir bílar í október samkvæmt tölum Bílgreinasambandsins.

Janúar einn skákar október þegar tæplega átta hundruð nýir bílar voru skráðir. Nú telur FÍB að rekja megi fjölgunina til nýrra reglna stjórnvalda um ríkisstyrki til rafbílakaupa sem tóku gildi fyrsta nóvember.

Þá fór styrkurinn úr hálfri milljón króna niður í fjögur hundruð þúsund og hámarkskaupverð lækkaði úr tíu niður í átta milljónir króna. Eftir að sú ákvörðun varð ljós auglýstu bílaumboð rafbíla í gríð og erg.

Vörugjöld á farartæki hækkuðu um áramót og því tollafgreiddu umboðin fjöldann allan af bílum sem svo voru afhentir janúar, einkum til bílaleiga. Þá voru vörugjöld á rafmagnsbíla afnumin en styrkurinn lækkaður úr 900 í 500 þúsund.

Sjónarmun fleiri nýir bílar hafa verið seldir það sem af er þessu ári og í fyrra eða 11.641 á móti 11.448.

Af þeim eru fimmtíu og fjögur af hundraði hreinir rafbílar, hybrid nítján komma fimm og tengiltvinnbílar rúm sautján prósent. Um níu af hverjum tíu nýskráningum eru því í svonefndum nýorkubílum.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.