Lagt til að Sandra verði 2. varaforseti í stað Ingvars

Við upphaf þingfundar í dag stendur til að kjósa 2. varaforseta Alþingis í stað Ingvars Þóroddssonar, sem hefur yfirgefið þingflokk Viðreisnar og gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn.

Lagt er til að 2. varaforseti verði Sandra Sigurðardóttir, þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi. Hún varð alþingismaður í kjördæminu í janúar þegar Guðbrandur Einarsson sagði af sér þingmennsku.

Sjö þingmenn sitja í forsætisnefnd Alþingis, úr öllum þingflokkum nema Framsóknarflokknum sem er með áheyrnarfulltrúa.