Landsbankinn spáir lækkun vísitölu neysluverðs um 0,41% í nóvember og því að ársverðbólga hækki í 6,0%.
Þetta kemur fram í hagsjá bankans.
„Flugfargjöld til útlanda lækka alla jafna í nóvember og munu hafa mest áhrif til lækkunar gangi spáin eftir. Við gerum ráð fyrir að nóvembertilboð setji svip sinn á mælinguna, en dagur einhleypra er í miðri verðsöfnunarvikunni,“ segir í tilkynningu.
Landsbankinn spáir enn fremur að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu ákvörðun.
Verðbólga í október var 5,9% og stóð í stað milli mánaða. Rúv / Ragnar Visage
