Landsmenn verða 560 þúsund eftir hálfa öld samkvæmt mannfjöldaspá

Mannfjöldinn á Íslandi fer í 500 þúsund á næstu 25 árum og upp í 560 þúsund næstu hálfa öld. Það er samkvæmt miðgildi mannfjöldaspárinnar, sem er svipað og núverandi íbúafjöldi Edinborgar í Skotlandi og Malaga á Spáni.

Til samanburðar má nefna að Íslendingar voru 219 þúsund árið 1976, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Hlutfall fólks á vinnualdri er talið geta farið úr 74 af hundraði niður í 67. Öldrunin stafi af lækkandi frjósemi og auknum lífslíkum.

„Á næstu tíu árum gæti frjósemishlutfall lækkað niður í 1,4 börn (miðgildi) á hverja konu og eru 80% líkur á því að hlutfallið verði 1,3 til 1,5. Hins vegar bendir grunnsviðsmynd spárinnar til þess að frjósemishlutfallið verði 1,6 árið 2076.“

Á næstu tuttugu árum er spáð að hópurinn 65 ára og eldri verði fjölmennari en undir tvítugu og að miðgildisaldur hækki úr 37 árum núna í fimmtíu ár árið 2076. Niðurstaða lægstu spár er að það ár verði íbúarnir 390 þúsund og 800 þúsund samkvæmt þeirri hæstu. Þá er gert ráð fyrir að mannfjöldinn fari í 416 þúsund árið 2046 og fækki svo.

Spárnar byggja á mismunandi forsendum um frjósemi og búferlaflutninga en taka ekki til hugsanlegra áfalla á borð við náttúruhamfarir eða efnahagslega þætti.

Samkvæmt núverandi forsendum aukast ævilíkur kvenna við fæðingu úr 84 árum í dag í 92 ár og karla úr 81 ári í 87. Fleiri flytjast til landsins en frá því á tímabilinu, að meðaltali frá 860 upp í 3.100 eftir viðmiðum.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.