Leðurblaka flaug vængjum þöndum um Fellabæ

Kolbrún Sverrisdóttir, sérfræðingur hjá Náttúrustofu Austurlands, sá um hádegisbil í gær hvar ókennilegur fugl flaug nærri heimili hennar í Fellabæ. Kolbrún segir langt í frá algengt að leðurblökur sjáist á flugi á Íslandi og hvað þá uppi á héraði.

Hún hafi séð til hennar út um eldhúsgluggann, gripið símann og tekið upp myndskeið. Fljótlega hafi hún áttað sig hvers kyns væri vegna fluglagsins og vængjanna auk þess sem leðurblökur hafi ekki stél.

„Mér var brugðið. Þetta var ekki það fyrsta sem ég bjóst við að sjá út um eldhúsgluggann. Það var ekki á mínum lista að sjá þetta hér á Íslandi. Það var mjög gaman, þetta var skemmtilegur fundur. Það væri gaman ef fólk verður vart við hana, endilega að láta vita.“

Kolbrún segist aðeins hafa séð leðurblökuna örskotsstund og áréttar að hún sé ekki sérfræðingur í leðurblökum. Því viti hún ekki hvaða tegund var þarna á flugi en hún var ekki mjög stór.

Kolbrún biður fólk um að tilkynna til lögreglu eða MAST og varar við að snerta blökuna ekki enda beri þær með sér sjúkdóma sem ekki hafi borist til Íslands, á borð við hundaæði. Leðurblaka hafi orðið vart á héraði þar sem skipakomur eru algengar.

Náttúrustofu Austurlands hafi fyrir nokkrum árum borist tilkynning um eina slíka, sem kom með skipi í Norðfjörð. Áhugavert sé að komast á snoðir um hvaðan þessi hafi komið. Hún telur að örlög blökunnar, sem ekki var mjög stór, verði fljótt ráðin. „Það er nú allt hvítt hér í dag þannig að ég er ekkert of viss um að hún hafi lifað af nóttina.“