„Það eru allir sammála um það sem ég heyri í að það er mikill meðbyr með lestri og bókum þessa dagana,“ segir Hrefna Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar íslenskra bókmennta.
Ný lestrarkönnun sýnir að fullorðnir Íslendingar lesa meira í ár miðað við í fyrra. Fólk ver að jafnaði 64 mínútum á dag í að lesa eða hlusta á bækur. Í fyrra voru það 59 mínútur.
„Lestur þjóðarinnar hefur tekið kipp frá því við gerðum síðustu könnun sem var fyrir ári. Það er auðvitað mjög ánægjulegt að sjá,“ segir Hrefna.
Færri sem lesa aldrei bækur
Hópurinn sem les aldrei bækur hefur dregist saman milli ára. Hlutfall þeirra sem segjast ekki hafa lesið neina bók síðasta mánuðinn minnkar úr 37% niður í 33% milli ára.
Fleiri lesa hefðbundnar bækur og notkun bókasafna hefur ekki mælst meiri síðan árið 2019. Íslendingar lesa að jafnaði rúmlega tvær bækur á mánuði.
Innt eftir því hvað gæti skýrt aukinn lestur milli ára segir Hrefna að lestur hafi tekið dýfu í fyrra og ef til vill hafi það verið þjóðinni áminning um að lesa meira.
„Svo erum við þetta ár búin að vera með lestrarhvatningu sem heitir Bókaðu stund fyrir bók þar sem við höfum gert allt mögulegt til að örva lestur og hvetja fólk til lestrar. […] Við höfum fundið gríðarlega mikinn meðbyr með því. Kannski er það að skila sér.“
Skýr aldurs- og kynjamunur
Þrátt fyrir að fleiri lesi nú en í fyrra hefur lestur í yngsta aldurshópi fullorðinna dregist saman. Rúmlega helmingur fólks á aldrinum 18–24 ára segist lesa minna en fyrir fimm árum.
Þá lesa konur umtalsvert meira en karlar. Þær lesa að jafnaði í 80 mínútur á dag en karlar í 49 mínútur. Hlutfall karla sem les ekkert er meira en helmingi hærra en hjá konum.
Tími sem varið er til lestrar er mjög ólíkur eftir aldri. Fólk yfir 75 ára ver að jafnaði 94 mínútum á dag í lestur en yngstu aldurshóparnir, 18–34 ára, um 51–52 mínútum.
