Lífsháski breytti sýn hans á lífið

Litla-Hraun er elsta starfandi fangelsið á Íslandi og um leið það stærsta. Á sama tíma og boðunarlistar lengjast þá tekst stór hluti fanga á við fíknisjúkdóma og margir eru einnig með taugaþroskaraskanir eins og ADHD.

Jón Ingi Jónsson er fangavörður á Litla-Hrauni en hann hóf störf þar fyrir tæpum tveimur áratugum. Undanfarin ár hefur hann stýrt trésmíðaverkstæðinu og þar verður til margvíslegur varningur sem hægt er að kaupa í gegnum Fangaverk.

Fangaverk er netverslun fyrir vörur sem framleiddar eru af föngum í fangelsum landsins. Vinnustaðir í fangelsum sem framleiða vörur eru hugsaðir sem hluti af grunnstarfi fangelsanna til þess að útvega vistmönnum störf á meðan fangavist stendur.

Jón Ingi er viðmælandi í 6. þætti Betrunar, þáttaraðar um fangelsismál Íslendinga í fortíð og nútíð á Rás 1.

Að sögn Jóns Inga á hann sér draum um að auka vægi verklegrar kennslu á Litla-Hrauni og hann vonast til þess að draumurinn rætist einn daginn. Eða eins og Jón Ingi orðar það: „Mér sýnist það vera þannig að maður verði bara að gera þetta sjálfur til að láta þetta gerast.“

Það sem hann lifir fyrir

Jón Inga dreymir um að búa til fordæmi og vera með verklega kennslu í trésmíði á trésmíðaverkstæðinu á Litla-Hrauni tvo morgna í viku og einn morgunn bóklegt nám þannig að strákarnir hans geti safnað einingum og lokið námi að afplánun lokinni.

„Þetta snýst um þetta. Ekki hvað kerfið getur gert fyrir þig heldur hvað getur þú gert fyrir kerfið til að gera það betra. Þetta er það sem ég lifi fyrir,“ segir Jón Ingi í 6. þætti Betrunar.

Að sögn Jóns Inga fengu lífshættuleg veikindi hann til þess að öðlast nýja sýn á lífið og í þættinum fer hann yfir það þegar hann var við dauðans dyr á gjörgæslu á sjúkrahúsi erlendis. Þarna kláraði hann níu líf.

„Þá fer maður að hugsa aðeins öðruvísi og fer að hugsa hvað maður vill gera með lífið. Þá ákvað ég að þar sem ég fékk séns þá ætla ég að reyna að gera sem mest gagn í vinnunni. Og með það sæki ég um að komast í dagvinnu.“

Fóru saman í gegnum námið

Hann sótti um starf á trésmíðaverkstæðinu en þrátt fyrir að hafa verið að smíða allt sitt líf hafði hann ekki lokið námi í iðninni. Þannig að hann sótti um fornám í trésmíði og komst inn. Ekki nóg með það heldur fór hann í gegnum undirbúningsnámið og sveinsprófið með strák sem var skjólstæðingur hans í fangelsinu. Síðan luku þeir meistaraprófinu saman í vor. Núna leggur Jón Ingi stund á kennaranám og draumurinn er að geta sinnt kennslu í trésmíði á Litla-Hrauni.

Hann segir að það þyrfti að auka vægi verklegrar kennslu í fangelsum þar sem margir þeirra sem þar eru eigi auðvelt með slíkt nám og þarna sé ADHD ekki Akkilesarhæll heldur kostur. Ef þeir fengju að nýta sína hæfileika á réttan hátt gæti staða margra þeirra vænkast. En til þess að draumur Jóns Inga verði að veruleika þarf að bæta aðstöðuna og um leið að auka fjármagn til fangelsiskerfisins segir hann.

Eitt það erfiðasta í starfi fangavarðar er þegar fólk kemur aftur í afplánun dóma og það fer ekki á milli mála hvað Jóni Inga þykir vænt um strákana sína eins og hann orðar það. Hann reynir að fylgjast með þeim að lokinni afplánun og þeir sem reynast vel í starfi á verkstæðinu geta leitað til Jóns Inga fyrir meðmæli þegar sótt er um vinnu.

Fordómar í garð fanga

Eitt af því sem fylgir oft fólki sem hefur setið í fangelsi er að það virðist stundum breyta litlu að viðkomandi hafi tekið út sína refsingu. Atvinnurekendur og leigusalar eru stundum lítt hrifnir af slíkri fortíð fólks, sem gerir allt erfiðara þegar fólk reynir að fóta sig á nýjan leik. Viðmælendur í þáttaröðinni Betrun eru sammála um að fangar og þeir sem hafa lokið afplánun mæti oft fordómum í íslensku samfélagi.

Jón Ingi lýsir í þættinum samtali við strák sem hefur ítrekað setið inni og því miður kemur alltaf aftur á Litla-Hraun þrátt fyrir að hafa svo sannarlega ekki ætlað sér það. „Mann vantar húsnæði og kemst síðan í eitthvað húsnæði og þar er eitthvað vesen og allt í einu er sama rútínan komin aftur án þess að hafa ætlað að gera það,“ hefur Jón Ingi eftir stráknum í Betrun.

Nöfnin á veggnum

Á vegg kaffistofunnar á trésmíðaverkstæðinu eru nöfn þeirra sem hafa unnið undir stjórn Jóns Inga og forvera hans í starfi. „Þarna eru allavegana, það er vont að segja það, en þarna eru allavegana tíu nöfn af strákum sem eru dánir.“

Hann fari reglulega upp á kaffistofuna og renni yfir töfluna. Þetta sé honum bæði hvatning og áminning í starfi. Sumir hafi einfaldlega ekki átt möguleika á meðan aðrir hafi fengið tækifæri og breytt sínu lífi.

Jón Ingi segir að þetta liti hans lífssýn – að fleiri fái möguleika. „Að hækka spilin þeirra. Þeir fæðast með tvista og þrista en að reyna að koma þeim upp í tíur. Þá tekst það.“

Erum öll manneskjur

Hátt hlutfall þeirra sem eru í afplánun á Litla-Hrauni eru útlendingar og Jón Ingi segir að oft komi upp tungumálaörðugleikar þar sem Google-Translate gegnir lykilhlutverki í samskiptum manna. Þetta skýrist mjög af fjölgun erlendra burðardýra í fíkniefnamálum. Á sama tíma lengist alltaf boðunarlistinn. Þrátt fyrir að búið sé að senda tugi úr landi þá er langt í land.

Í hans huga skiptir þjóðerni fólks ekki máli enda megi aldrei gleyma því að við erum öll manneskjur. „Þessir strákar, þeir þurfa líka að vinna og við getum ekki bara hugsað um Íslendingana og svoleiðis. Þetta eru allt manneskjur, þetta snýst um það,“ segir Jón Ingi og bætir við: „Þegar maður er búinn að æva sig í að deyja níu sinnum þá sér maður hlutina öðruvísi.“

Börnin sem ekki pössuðu inn í kerfið

Þráinn Farestveit framkvæmdastjóri Verndar fangahjálp, er menntaður afbrotafræðingur. Hann er fæddur og uppalinn í Hafnarfirði á sjöunda áratugnum. Það var á þeim tíma þegar börn sem ekki pössuðu alveg inn í skólakerfið voru tekin út úr kerfinu af sveitarfélögunum og vistuð hingað og þangað um landið, segir hann.

Flestir þeirra sem voru vistaðir á Breiðavíkurheimilinu komu úr Hafnarfirði. Þráinn er eitt þeirra barna sem pössuðu ekki inn í skólakerfið enda hvatvís og átti erfitt uppdráttar. Hann var vistaður á vistheimili í eitt ár við skelfilegar aðstæður sem breyttu öllu hans lífi því í kjölfarið fylgdi mikil vímuefnaneysla og afbrot eins og Þráinn lýsir í 6. þætti Betrunar.

Það varð honum til bjargar að fara í meðferð og undanfarna áratugi hefur hann starfað fyrir Vernd, fyrst í stjórn og síðar sem framkvæmdastjóri.

Á þessum tíma rak Vernd áfangaheimili fyrir þá sem höfðu setið í fangelsum en frá árinu 1995 hefur fólk getað tekið hluta afplánunar á Vernd. Að sögn Þráins gerði sennilega enginn sér grein fyrir þeirri gríðarlegu breytingu sem þetta myndi hafa á fangelsismálakerfið á Íslandi. Mjög fáir fengu að ljúka afplánun á Vernd í upphafi, til að mynda ekki þeir sem voru með þunga dóma fyrir mjög alvarleg brot.

„Menn höfðu líka þessi refsisjónarmið um að viðkomandi aðili yrði auðvitað að einhverju leyti að finna svolítið fyrir því að vera í fangelsi. Það væri ekki hægt að horfa fram hjá því að menn yrðu að kannast við hvað þeir hefðu gert eða hvaða glæpi þeir höfðu framið,“ segir Þráinn.

Reyna að fækka dögum í fangelsi

Að sögn Þráins reyndi hann strax að breyta þessu viðhorfi, að vettvangur Verndar væri ekki að taka neitt frá þolendum þeirra glæpa sem þeir höfðu orðið fyrir af þeirra hálfu heldur reyna að koma í veg fyrir að þessir einstaklingar kæmu aftur inn í fangelsi.

Í upphafi voru þetta þrír mánuðir sem dómþolar gátu tekið út af óskilorðsbundnum dómum í fullnustu utan fangelsa en núna eru það tvö ár. Nokkuð sem fáir höfðu trú á í byrjun að væri hægt en þetta hafi gefið afar góða raun og auðveldað fólki að komast inn í samfélagið að nýju.

Þráinn segir að margir þeirra sem hafi verið í fangelsum komi úr mjög brotnum aðstæðum og hafi í raun ekki átt neinn vettvang inn í þetta venjulega samfélag sem við viljum að allir séu í.

„Hugmyndin var sú að reyna að fækka dögum í fangelsi. Fangelsi á Íslandi á þessum tíma voru kannski ekki upp á marga fiska og eru í rauninni ekki enn. Við eigum Hólmsheiðina sem er ágætis fangelsi sem er kannski ekki á réttum stað og svo fram eftir götunum,“ segir Þráinn en hann lýsir í þættinum því sem hann telur að hvað varðar staðsetningu fangelsisins á Hólmsheiði.

Eitt af því sem Þráinn finnur að í íslenskum fangelsum er skortur á sérhæfðu starfsfólki, svo sem iðjuþjálfum o.fl. Ekki sé hægt að ætlast til þess að fangaverðir sinni þessum störfum enda séu þau ekki hluti af menntun þeirra og starfslýsingu.

Mikil þróun hefur átt sér stað hvað varðar afplánun utan fangelsa á þeim tíma sem hefur liðið frá því Vernd varð afplánunarúrræði og stendur Ísland þar framar mörgum öðrum ríkjum. „Það er bara reynslan af svona kerfum að einstaklingur sem situr inni í mjög langan tíma hlýtur af því skaða, tengslarof og fjölskyldumissi og svo fram eftir götunum. Oft geta menn orðið hættulegri við það að vera of lengi í fangelsi,“ segir Þráinn.

Allir verða að vera í virkni

Hann segir að Vernd sé ekkert endilega eina úrræðið heldur megi nefna Hlaðgerðarkot, Krýsuvík, og meðferð hjá SÁÁ en eitt af því sem er skilyrði fyrir því að komast á Vernd er að vera agabrotalaus, vímuefnalaus og í virkni.

Auk þess er gerður svonefndur Verndarsamningur en í honum er kveðið á um að það þurfi að liggja fyrir hvar viðkomandi ætli að starfa, við hvað o.fl. áður en dvöl hefst. Það kemur enginn inn á Vernd án þess að vera með eitthvað hlutverk og í virkni. Þetta hafi sýnt sig og sannað að vera gott veganesti út í lífið sem tekur við.

Inni í fangelsi geti fólk hins vegar valið hvort það tekur þátt í því samtali sem þar á sér stað við sérfræðinga. „Þannig að þú getur farið í gegnum 10 eða 12 ára dóm án þess að tala við nokkurn ef þú bara vilt það,“ segir Þráinn en hann er einnig viðmælandi í 7. þætti Betrunar sem er á dagskrá Rásar 1 á þriðjudaginn klukkan 13.

Langir boðunarlistar ekki boðlegir

Helgi Gunnlaugsson, prófessor í afbrotafræði við Háskóla Íslands, hefur rannsakað og borið saman ólíkar nálganir varðandi fangelsismál. Norðurlöndin skapa sér ákveðna sérstöðu þar sem bæði fangelsin eru minni og mannúðlegri en víða í hinum anglosaxneska heimi og refsingar almennt vægari. Reynslan sýni að það gefi alls ekki verri raun að beita vægari og um leið mannúðlegri refsingum. Að öllum líkindum er árangurinn jafnvel betri. Þetta sjáist meðal annars á færri endurkomum í fangelsi.

Á Íslandi eru fangaplássin tæplega 200 í fjórum fangelsum samanborið við að í Bretlandi er ekkert óalgeng stærð fangelsis um þúsund fangapláss.  Lítil fangelsi auki líkur á meiri mannúð og betri samskiptum milli starfsmanna og fanga.

Helgi segir að hér hafi framkvæmd refsinga breyst á undanförnum árum á þann hátt að fleiri fá tækifæri til að afplána með öðrum hætti en að sitja í fangelsi. Þetta hafi ekki ýtt undir að viðkomandi brjóti af sér aftur en þetta breyti því ekki að boðunarlistinn er langur.

Biðlistinn segi einnig aðra sögu – að þeir sem bíða, jafnvel fleiri hundruð, séu ekki hættulegri en svo að þeir geti bara tekið númer svona eins og við gerum þegar við bíðum eftir því að komast að hjá lækni. En þessu þurfi samt að breyta og ekki sé boðlegt að fólk bíði svona lengi. Hvorki fyrir þá sem brjóta af sér né fyrir brotaþola.

Að sögn Helga er ekkert keppikefli að senda fleiri á bak við lás og slá því oft geta önnur úrræði gefið góða raun og nefnir þar meðal annars áfangaheimili Verndar í Laugardalnum.

Í þættinum fer Helgi yfir þær breytingar sem hafa orðið á refsingum undanfarin ár, til dæmis þyngri dóma í kjölfar þess að e-taflan kom á markað, og áhrif þessa á aðrar tegundir afbrota, svo sem kynferðisbrot. Helgi Gunnlaugsson er einnig viðmælandi í 9. þætti Betrunar sem er á dagskrá Rásar 1 síðar í mánuðinum.Jón Ingi Jónsson fangavörður á Litla-Hrauni öðlaðist nýja sýn á lífið eftir að hafa veikst lífshættulega í útlöndum. Hann á sér þann draum að koma fleirum skjólstæðingum kerfisins í gegnum verknám. Betrun er á dagskrá Rásar 1.

Hægt er að hlusta á sjötta þátt Betrunar í spilara RÚV. á helstu hlaðvarpsveitum og eins hér að ofan.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.