Draga á úr vindi sem gengið hefur yfir landið í nótt með morgninum, fyrst norðvestantil. Úrkoma færist hægt og rólega austur og styttir upp í höfuðborginni og á norðvestanverðu landinu í dag.
Í kvöld má svo búast við hægum vindi víðast hvar en einnig rigningu. Snjókoma eða slydda verður til fjalla á norðanverðu landinu. Stöku skúrir eða él norðvestantil. Hiti að degi til á bilinu 3 til 8 stig. Á morgun verður svo norðlæg átt á bilinu 3 til 10 metrar á sekúndu og víða bjart með köflum. Þá tekur að kólna í veðri. Víða er talsverð rigning í dag en hún færist austur með deginum og styttir upp á norðvestanverðu landinu.Rúv / Bragi Valgeirsson
