Manstu eftir Broadway?

Skemmtistaðurinn Broadway var opnaður við Álfabakka í Mjódd í Reykjavík 26. nóvember 1981.

Broadway var vinsæll samkomustaður um árabil, sérstaklega um áramót. RÚV sendi beint út frá áramótafagnaði þar 1986-1987. Þá var staðurinn fluttur í Ármúla, á jarðhæð Hótels Íslands. Umsjónarmenn voru Arnþrúður Karlsdóttir, Valgeir Guðjónsson og Þorgeir Ástvaldsson.

Eflaust eiga margir góðar minningar tengdar skemmtistaðnum Broadway í Reykjavík, hvort sem það var á áramótaballi, góðu kvöldi úti á lífinu, fegurðarsamkeppni eða annarri skemmtun.

Í myndskeiðinu hér fyrir ofan má sjá brot úr útsendingunni. Þarna ræðir Valgeir Guðjónsson við Jón Pál Sigmarsson, sterkasta mann í heimi, og hrósar honum meðal annars fyrir góða takta á dansgólfinu. Við hlið Jóns Páls situr Ólafur Ragnar Grímsson, síðar forseti Íslands.

Færri kvöld til skemmtana

Ólafur Sigurðsson fréttamaður fjallaði um breytingar á skemmtanahaldi í borginni í Kastljósi árið 1988. Þar kom fram að stærri skemmtistaðir væru ekki lengur opnir á fimmtudögum og sunnudögum. Flestir færu því að skemmta sér á laugardagskvöldum. Nokkrir voru teknir tali úti á lífinu og spurðir álits.

Eflaust eiga margir góðar minningar tengdar skemmtistaðnum Broadway í Reykjavík, hvort sem það var á áramótaballi, góðu kvöldi úti á lífinu, fegurðarsamkeppni eða annarri skemmtun.

Ólafur Laufdal, eigandi Broadway, sagði í þættinum að hann væri ósammála því að aðgangseyririnn væri of hár. Meira væri um að hljómsveitir spiluðu á böllum í stað diskóteks. Framboðið væri því vandaðra en áður.

Á staðnum voru líka haldnar fegurðarsamkeppnir sem voru vinsælt sjónvarpsefni á þessum tíma. Rauða dreglinum var rennt út fyrir utan Broadway í Mjódd fyrir fegurðardrottningarnar.

Eflaust eiga margir góðar minningar tengdar skemmtistaðnum Broadway í Reykjavík, hvort sem það var á áramótaballi, góðu kvöldi úti á lífinu, fegurðarsamkeppni eða annarri skemmtun.

Reykjavíkurborg festi kaup á húsi skemmtistaðarins Broadway í Mjódd sumarið 1989. Í fréttum var rætt við Davíð Oddsson þáverandi borgarstjóra sem lýsti því að í húsinu ætlaði borgin að reka skemmtistað fyrir unglinga. Það hafi fengist á góðu verði og lítið þyrfti að gera við það til þess að hefja starfsemi.
Eflaust eiga margir góðar minningar tengdar skemmtistaðnum Broadway í Reykjavík, hvort sem það var á áramótaballi, góðu kvöldi úti á lífinu, fegurðarsamkeppni eða annarri skemmtun.

Þar sem Broadway var áður við Álfabakka var síðar um langa hríð rekið kvikmyndahús Sambíóanna. Því var lokað í byrjun þessa árs. Þarna stendur til að opna höfuðstöðvar Nova, sem stærir sig af því að vera stærsti skemmtistaður í heimi.

Hótel Ísland er ekki heldur í Ármúla lengur. Þar er nú Klíníkin til húsa.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.