Ljósleiðarinn nær til um 80% heimila og verður boðinn til sölu

Hámarka á verðmæti Ljósleiðarans fyrir eigendur, hvort sem niðurstaðan verði að Orkuveitan eigi félagið áfram, nýir eigendur eignist það að hluta eða í heild eða að það verði skráð á markað.

Ljósleiðarinn er að öllu leyti í eigu Orkuveitunnar og langstærsti eigandi hennar er Reykjavíkurborg, en einnig eiga Akraneskaupstaður og Borgarbyggð hlut. Til að hægt sé að halda áfram með málið þarf samþykki allra hluthafa. Salan er á verkefnalista nýs meirihluta í borginni og afstaða þeirra sem stýra borginni liggur því fyrir. Minnsti hluthafinn, Borgarbyggð, er þegar búinn að samþykkja málið fyrir sitt leyti og bæjarstjórn Akraness ætlar að fjalla um málið í desember, en þar eru Sjálfstæðisflokkur og Framsókn og frjálsir í meirihluta.

Íslendingar í fremstu röð í nýtingu á ljósleiðaratækni

Þuríður Björg Guðnadóttir tók við sem framkvæmdastýra Ljósleiðarans í janúar. Hún kom í Spegilinn til að fara aðeins yfir stöðu félagsins og reksturinn undanfarin ár.

Hún segir að markmið Ljósleiðarans hafi frá upphafi verið að tryggja Íslendingum forystu í aðgengi að háhraðaneti. Það hafi tekist því Ísland sé nú í fremstu röð í nýtingu á ljósleiðaratækni. Hvort sem litið sé til aðgengis eða notkunar séu Íslendingar númer eitt í Evrópu.

Fyrirtækið Ljósleiðarinn á rætur sínar í fyrirtæki sem hét lína.net en það var stofnað árið 2000, sem dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur. Lína.net rann síðan inn í Gagnaveitu Reykjavíkur, sem síðan varð að Ljósleiðaranum árið 2021. Starfsemi félagsins hefur frá upphafi verið umdeild í pólitíkinni, en ekki verður farið út í þá löngu sálma hér. Frá 2007 hefur félagið lagt ljósleiðara, fyrst og fremst á suðvesturhorni landsins. Þá er rétt að nefna að félagið keypti árið 2023 grunnnet Sýnar á þrjá milljarða króna. Ljósleiðarar félagsins ná til um 80% af heimilum landsins – en það þýðir þó ekki að 80% heimila noti ljósleiðara félagsins því annað félag, Míla, rekur einnig stórt ljósleiðarakerfi, auk þess sem nokkur minni félög reka svæðisbundin ljósleiðaranet.

Þuríður segir að Ljósleiðarinn nái til um 130.000 heimila sem jafngildir um 80% og 10.000 fyrirtækjarýma.  Reksturinn hafi aldrei verið sterkari og tækifærin framundan mikil.

Tap undanfarin fjögur ár og stefni í tap í ár

Þuríður bendir á að Ljósleiðarinn sé eitt verðmætasta innviðafyrirtæki landsins og í miklum vexti. Tekjur hafi næstum tvöfaldast á fimm árum og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði hafi verið 3,5 milljarðar í fyrra. Þegar tekið hefur verið tillit til afskrifta, lána og slíkra þátta hefur þó verið tap á Ljósleiðaranum undanfarin fjögur ár, samtals 1,7 milljarðar króna verðlagi hvers árs. Tapið árið 2024 nam 730 milljónum. Tapið var helmingi minna í fyrra en samkvæmt hálfsársuppgjöri þessa árs var tapið 480 milljónir á fyrstu sex mánuðum ársins.

Þuríður segir tap undanfarinna ára fyrst og fremst bókhaldslegt og sé tilkomið vegna fjárfestinga í innviðum sem verið sé að afskrifa. Slíkt sé ekki óeðlilegt í innviðafélagi sem sé að koma úr fjárfestingaskeiði. Alls eru eignir félagsins nú metnar á um 40 milljarða en skuldirnar eru um 26 milljarðar – og þær taka auðvitað í þegar verðbólga er mikil og vextir eru háir.

„Rekstur ljósleiðarans er stöðugur og góður,“ segir hún. „Reksturinn sjálfur skilar 3,5 milljörðum króna en sú tala hækkar um 17% frá því í fyrra. Tapið, það kemur af afskriftum og fjármagnskostnaði vegna fjárfestinga í innviðunum eins og eðlilegt er hjá félagi í uppbyggingu. En hafa má í huga að það helmingaðist líka á milli ára. Þannig að tekjurnar okkar, þær hafa verið að aukast og kostnaðurinn hefur verið að fara niður.“

Fjármagnskostnaður taki í en tekjurnar hafi aukist, jafnt í tengingum til fyrirtækja og heimila og í öðrum tekjustoðum.

Reynt að selja þriðjung árið 2023

Tekjur Ljósleiðarans í fyrra voru sex milljarðar en til samanburðar þá námu tekjur Mílu, helsta keppinautar Ljósleiðarans um 10 milljörðum. Hjá Mílu er heildarútkoman ekki heldur réttum megin við núllið, því tap af rekstri Mílu var um 2 milljarðar. Eins og kunnugt er var Míla í eigu Símans sem seldi félagið til franska sjóðastýringarfyrirtækisins Ardian árið 2022 fyrir 46 milljarða. Eignir Mílu eru metnar á ríflega 85 milljarða, samanborið við 40 milljarða Ljósleiðarans en skuldir Mílu eru hlutfallslega heldur lægri.

Árið 2023 veittu eigendur Orkuveitunnar umboð til þess að auka hlutafé og selja þriðjung í félaginu – en það ferli rann út í sandinn. Samþykki eigendur Orkuveitunnar að hefja ferlið núna, sem gæti snúist um að selja allt félagið, mun fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafa umsjón með því.

Þuríður segir aðspurð að starfsfólki lítist vel á hugmyndir um að selja fyrirtækið. Starfsfólk vinni að því alla daga að bæta reksturinn og hlúa að og bæta innviði. „Þannig að þetta er bara spennandi vegferð fyrir Ljósleiðarann,“ segir hún.

Hluthafafundur Ljósleiðarans samþykkti í síðasta mánuði að veita umboð til aðgerða sem geta leitt til breytinga á eignarhaldi félagsins. Tap hefur verið á rekstrinum undanfarin ár enda taka skuldirnar í þegar vextir eru háir.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.