Lögum um nýja gjaldheimtu í höfnum landsins fylgir engin reglugerð

Öll stærstu skip sem koma í íslenskar hafnir greiða úrgangsgjald og förgunargjald samkvæmt gjaldskrá viðkomandi hafnarsjóðs. Það er á þeirra ábyrgð, og fyrirtækja sem sækja úrgang í þessi skip, að skila gögnum til hafnarinnar sem síðan heldur utan um og tryggir að öllum formsatriðum sé framfylgt.

Nýr flokkur skipa og báta rukkaður um úrgangs- og förgunargjald

Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, umhverfis- og gæðastjóri Faxaflóahafna, segir þetta í góðum farvegi – allt unnið rafrænt og skriffinnskan því lítil. „Fram til þessa þá hafa sem sagt fiskiskip og skemmtibátar, sem ekki mega flytja fleiri en tólf farþega, verið undanskilin greiðslu þessara gjalda. Þetta eru til dæmis mikið hvalaskoðunarbátarnir.“

Með breytingum á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, sem samþykktar voru á Alþingi í síðasta mánuði, eru þessir minni farþegabátar og fiskiskip felld undir þessa nýju löggjöf. Lagabreytingin tekur gildi fyrsta janúar 2027. Meginbreytingin sem því fylgir er að þessi tegund skipa og báta eiga að greiða úrgangsgjald sem þeir gerðu ekki áður.

„Það kemur svo líka fram í lögunum að það eigi að vera undanþága fyrir skip eða báta sem hafa reglulega viðkomu og geta sýnt fram á trygga afhendingu úrgangs. Svo er það líka þannig að áður var það í lögunum að við máttum lækka gjald ef það var hægt að staðfesta að það væri umhverfisvæn umhverfisstjórnun, eins og það er orðað í lögunum, um borð í skipunum. Núna er það sem sagt ekki lengur heimilt. Svo eru að bætast við þarna úrgangsflokkar, þar á meðal úrgangur sem er fangaður af tilviljun, til dæmis net eða gömul veiðarfæri eða eitthvað sem er veitt upp. Svo er þá bara lítil breyting um áætlunargerð hafnanna um móttöku úrgangs, sem færist úr reglugerð yfir í lög.“

Lagabreytingin flækir málin og eykur vinnuna en lögunum fylgir engin reglugerð

Þarna verða miklar breytingar á vinnubrögðum hjá starfsfólki hafnanna, lagabreytingin flækir málin og eykur vinnuna í sumum tilfellum – en gallinn er sá segir Gyða að lögunum fylgir engin reglugerð. Leiðbeiningar um hvernig eigi að framfylgja breyttum lögum eru ekki til. Þetta setur starfsfólk í óþægilega stöðu því frá og með fyrsta janúar er þeim skylt að rukka eigendur þessara skipa um gjöld sem ekki hefur þurft að innheimta áður.

„Okkar viðskiptavinir hérna í höfninni og bara í flestum höfnum þeir í rauninni sjá um sína úrgangsstjórnun sjálf og eru með bara sín úrgangsmál í góðum farvegi. Og við erum bara í góðum samskiptum við þessa aðila um það og vitum að þarna eru málin á góðum stað. Og eins og kemur nú fram í lögunum að þá eru þessir aðilar sem eru með reglulega viðkomu og sýna fram á góða úrgangsstjórnun, þeir eiga að fá undanþágu frá greiðslu þessara gjalda. En vandinn er sá núna að við eigum að leggja á gjöldin 1. janúar en þessar undanþágur, eða skilyrði undanþágunnar, hún hefur ekki verið skilgreind. Okkur finnst mjög óheppilegt að þurfa að leggja á gjöld frá 1. janúar og hafa alla vega mjög sterkan grun um að mjög margir okkar viðskiptavinir í dag falli undir undanþáguna, en undanþágan liggur ekki fyrir.“

Breytingu á lögum sem taka gildi um áramót og skylda hafnarstjórnir til að innheimta nýtt gjald af ákveðinni tegund skipa og báta, fylgir engin reglugerð. Starfsfólk hafna um allt land hefur því engar leiðbeiningar um hvernig á hefja þessa gjaldtöku.

Óljóst hvenær á að fella niður gjöld og hver á að greiða fyrir förgun úrgangs

„Það sama kannski gildir þá um þetta viðmið um hvenær við eigum að fella niður gjald fyrir þessa úrgangsstjórnun sem er um borð. Viðmiðin fyrir það liggja ekki heldur fyrir, þau hafa ekki verið staðfest í reglugerð. Og ef við eigum að fella niður gjaldið frá skipi eða bát þar sem úrgangsstjórnun er í góðum málum, þá myndast engu að síður úrgangur um borð. Þá erum við líka að velta fyrir okkur, hver ber þá kostnaðinn af förguninni? Lendir það þá á höfnunum? Og svo er það þessi nýi úrgangsflokkur, úrgangur fangaður af tilviljun, hver á að standa straum af þeim kostnaði svo sem að farga honum? Það er ekki úrvinnslugjald eða neitt á þessu eins og á gosdósum þannig að það er ekki búið að borga fyrir förgunina fyrirfram heldur núna kemur úrgangur í land og það er í rauninni; hver á að greiða fyrir þetta?

Þarna eru margar spurningar og Gyða segir að í grunninn snúist áhyggjur hafnarstarfsfólks um að leikreglurnar séu ekki skýrar. Þau muni framfylgja lögunum, það standi ekki á því, en reglurnar verði að vera skýrar og sanngjarnar.„Við viljum bara fyrst og fremst viðhalda okkar góða sambandi sem við höfum núna við okkar viðskiptavini þar sem gjaldtakan er bara sanngjörn. Og svo viljum við líka halda í heiðri þessari mengunarbótarreglu að sá sem mengar borgar.“

„Gjaldskrárnar verða að liggja fyrir bara núna á næstu dögum“

Ársþing Hafnasambands Íslands var haldið fyrir hálfum mánuði og Gyða segir þar hafa komið skýrt fram að fólk hafi áhyggjur af þessu og útfærslunni sérstaklega. Engin andstaða hafi komið fram um að verið sé að innleiða þessi lög, hendur sé það framkvæmdin.

„Samkvæmt lögunum þá verðum við náttúrulega bara að fara að rukka. Við verðum bara að breyta gjaldskránum og nú höfum við lítinn tíma í rauninni. Gjaldskrárnar bæði hjá okkur og náttúrulega bara minni höfnum úti á landi, þetta þarf að leggja fyrir stjórn hjá okkur og náttúrulega fyrir bæjarstjórnir út um allt land. Þannig að gjaldskrárnar verða að liggja fyrir bara núna á næstu dögum. Og ef við erum að fara að leggja á okkar gjöld, þurfum við þá bara að kreditfæra það allt til baka þegar þessar undanþágur liggja fyrir? Við erum með stóra höfn hérna í Reykjavík en vandinn er kannski stærri hjá minni höfnum sem hafa kannski minna bolmagn, bara til að halda utan um þetta.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.