Bloomberg greindi frá því í síðustu viku að megrunarlyfið MariTide eigi rætur að rekja til rannsókna Íslenskrar erfðagreiningar á erfðaefni um 200 þúsund Íslendinga sem fyrirtækið safnaði saman.
„Við gerðum enga slíka uppgötvun. Við höfðum ekkert með byrjun á þessu prógrammi að gera,“ sagði Kári Stefánsson, stofnandi og fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, í morgunútvarpi Rásar 2.
Kári Stefánsson segist þó telja lyfið verða býsna gott. Hann segir sögur af þessu tagi oft verða til séu blaðamenn látnir skrifa þær.
Lyfið byggi á nýtingu sama lyfjamarks og önnur þyngdarstjórnunarlyf Eli Lilly og Novo, sem áður hét Novo Nordisk. Við þá sameind hafi Amgen hnýtt mótefni gegn svonefndum GI-viðtaka, sem tengist tilraunum með mýs en ekki mannefnafræði.
„Hefði ekki átt að gerast“
Þannig hafi fyrirtækið logið þessari uppgötvun upp á Íslenska erfðagreiningu, sem sé hvort tveggja hlægilegt og hættulegt og grafi undan trúverðugleika, komist þeir sem um fjalla að ósannsöglinni.
„Þá vaknar sú spurning hvaða ástæðu höfum við til að trúa öðru sem þeir segja um lyfið?“
Kári segir einnig að trúverðugleiki Íslenskrar erfðagreiningar geti beðið hnekki berji hún sér á brjóst að hafa gert uppgötvunina.
„Fyrst þeir sögðu ósatt um þetta, hvaða ástæðu höfum við til að trúa þeim þegar þeir tala um aðrar uppgötvanir? Þannig að þetta er óheppilegt og hefði ekki átt að gerast,“ segir Kári.
Vísindamenn Erfðagreiningar hefðu svarað spurningum Amgen eftir að lyfið var komið í þróun enda í góðri aðstöðu til þess. Deilur hafi kviknað um GI-lyfjaviðtakann, þar sem Ely Lily hafði búið til lyf sem hvatti þetta lyfjamark en Amgen bjó til lyf sem latti hann.
Kári segir vísindamenn ÍE hafa komist að þeirri niðurstöðu að val Amgen hafi líklega verið rétt.
„Það var allt fakt-vinna en ekki ástæða þess að það var valið.“
Íslensk erfðagreining hafi leitt erfðafræðirannsóknir um áratugaskeið og Amgen hafi fjölda lyfja í þróun byggða á þeim. Því sé alveg út í hött að gera mikið úr þeim þætti við þróun lyfs þar sem erfðafræði var ekki grunnurinn.
Líklegast hafi greinin hjá Bloomberg orðið til í samvinnu blaðakonunnar og Amgen, þótt Kári segist ekkert geta fullyrt um það. Íslensk erfðagreining sé orðin lítill hluti af Amgen og sé stjórnað af því.
Stofnandi og fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir af og frá að þróun bandaríska lyfjafyrirtækisins Amgen á nýju megrunarlyfi hafi byrjað með uppgötvun sem gerð var á Íslandi. Slík ósannindi geti dregið úr trúverðugleika.
Til dæmis geti vísindamenn ekki birt vísindagreinar án leyfis fyrirtækisins. Eftir því sem meira er notað af erfðaefni Íslendinga aukist líkur á að eitthvað gott komi út úr því segir Kári.
Hann áréttar að Amgen sé rekið í hagnaðarskyni og að ekkert sé óeðlilegt við það. Það sé fínt lyfjafyrirtæki sem hafi búið til mikið af góðum lyfjum og hann þakkar einu þeirra líf sitt, án þess að tíunda það frekar.
Útilokað sé þó að erlent stórfyrirtæki eigi mikið magn erfðaefnis Íslendinga.
