Íris Eik Ólafsdóttir er réttarfélagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur og framkvæmdastjóri Samskiptamiðstöðvarinnar í Skeifunni. Hún og hennar fjölskyldumeðlimir nota staðsetningarappið Life 360 en ein kveikjan að því að þau hlóðu appinu niður var að maðurinn hennar, sem er lögmaður, hvarf einn daginn og hún náði ekki í hann í síma.
„Hann hafði talað við einn svolítið svona æstan síbrotamann fyrr um morguninn sem hafði staðið í hótunum við hann, og ekkert mál, við erum bæði vön því að vinna í krefjandi umhverfi og maður hristir það bara af sér,“ útskýrir Íris Eik.
Glórulausar hugsanir
Hún segist þó hafa orðið óróleg þegar ástandið dróst á langinn, „ætli þessi sé bara búinn að ræna honum, bara svona glórulausar hugsanir“.
Þegar maðurinn hennar hringdi til baka eftir sex klukkustundir kom í ljós að hann hafði lent í langri skýrslutöku á Litla-Hrauni en þar eru símar teknir af fólki.
„Þetta var eðlileg skýring en þarna hefði ég bara strax séð að hann væri þarna á Suðurlandi,“ segir hún.
Rætt er við Írisi Eik í nýjasta þætti af hlaðvarpsþættinum Þessu nútímalífi.
Í spilaranum hér fyrir neðan er hægt að hlusta á þáttinn:Írisi Eik Ólafsdóttur félagsráðgjafa stóð ekki á sama þegar eiginmaður hennar svaraði ekki síma í margar klukkustundir. „Óttakerfið fer alveg á fullt,“ segir hún en fyrr um daginn hafði síbrotamaður haft í hótunum við manninn hennar.
Í þættinum er fjallað um staðsetningaröpp en það er orðið viðtekið að fólk vakti staðsetningu fjölskyldumeðlima sinna eða vina í rauntíma í gegnum forrit á borð við Life 360 eða Snapmap.
Hvaða áhrif hefur þessi þróun á okkur og samskipti okkar hvert við annað? Er vöktunin praktísk, jafnvel nauðsynleg í hættulegum heimi eða erum við að verða hálfgerðir eltihrellar?
Íris Eik ræðir reynslu sína af appinu Life 360 en ekki síður um hvernig þessi þróun birtist í samtölum við skjólstæðinga og hvað ber að hafa í huga við notkun staðsetningarappa.
Arnhildur Hálfdánardóttir, þáttastjórnandi Þessa nútímalífs, prófar staðsetningarapp, fær reynslusögur frá notendum og ræðir auk Írisar, við Bergþóru Hildi Andradóttur og Svandísi Birgisdóttur, jafningjafræðara hjá Hinu húsinu og Helgu Sigríði Þórhallsdóttur, sviðsstjóra Alþjóða- og fræðslusviðs Persónuverndar.
