Malbiksviðgerðir í Garðabæ og Reykjavík á morgun

Malbiksviðgerðir verða á gatnamótum Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar og á rampi frá Miklubraut að Réttarholtsvegi á morgun, mánudag ef veður leyfir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Colas sem send var fjölmiðlum í kvöld.

Beygjurein frá Vífilsstaðavegi verður lokuð og þrengt verður að umferð á Hafnarfjarðarvegi milli klukkan 10:00 og 13:00 vegna malbiksviðgerða. Strætórein verður einnig lokuð.

Að þessum framkvæmdum loknum verður farið í malbiksviðgerðir á rampi frá Miklubraut að Réttarholtsvegi milli klukkan 14:00 og 17:00 á morgun. Rampurinn verður lokaður meðan á framkvæmdum stendur.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.