Þær María Káradóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, og Margrét Kristín Pálsdóttir, settur lögreglustjóri á Suðurnesjum, teljast hæfastar til að gegna embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að mati nefndar sem fengin var til að meta hæfni umsækjenda.
Þetta kemur fram í skriflegu svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. Nefndin boðaði fjóra af sex umsækjendum í viðtal og kynningu og komst í kjölfarið að framangreindri niðurstöðu eftir að allir fjórir höfðu sent ábendingar eða athugasemdir við mat hennar. Ákvörðun nefndarinnar stóð óhögguð.
Dómsmálaráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar í júní eftir að Halla Bergþóra Björnsdóttir var skipuð ríkislögreglustjóri. Fjórir fyrrverandi og núverandi lögreglustjórar sóttu um embættið.
Umsækjendur auk Maríu og Margrétar voru þau Birgir Jónasson, lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra, Serhii Duiko, sjúkraliði á Grund, Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, og Vera Dögg Guðmundsdóttir, nefndarmaður í kærunefnd útlendingamála.
Dómsmálaráðherra skipar lögreglustjórann til fimm ára, lögum samkvæmt. Tafir urðu á ráðningarferlinu meðal annars vegna sumarleyfa.
Dómsmálaráðherra hefur kynnt drög að frumvarpi þar sem gert er ráð fyrir að lögregluembættum verði fækkað úr níu í þrjú eftir rúmt ár. Þar á meðal er gert ráð fyrir sameiningu embættanna á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum.
