Ríkisendurskoðun hefur verið sýknuð af kröfum staðgengils ríkisendurskoðanda sem krafðist þess að ákvörðun um tilfærslu hennar í starfi yrði felld úr gildi.
Konan var sviðsstjóri stjórnsýslu- og lögfræðisviðs Ríkisendurskoðunar, og gegndi einnig starfi staðgengils ríkisendurskoðanda, en var flutt í starf sviðsstjóra nýs og sameinaðs stoðsviðs Ríkisendurskoðunar.
Staðgengillinn taldi að ákvörðun um tilfærslu hennar í starfi mætti rekja til þess að hún fundaði með forseta og skrifstofustjóra Alþingis um starfsmannamál embættisins. Það gerði hún í apríl í fyrra. Hún fór svo í veikindaleyfi í maí og var tilkynnt ákvörðunin um tilfærslu í starfi í lok júlí. Engin samskipti voru milli ríkisendurskoðanda og staðgengilsins í millitíðinni.
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur segir að ótvírætt sé að forstöðumaður ríkisstofnunar hafi heimild til að breyta störfum og verksviðum ríkisstarfsmanns. Þær verði þó að vera reistar á málefnalegum sjónarmiðum og megi ekki vera meira íþyngjandi fyrir starfsmann en nauðsyn beri til.
Í skýrslu ríkisendurskoðanda kom meðal annars fram að breytingarnar hefðu verið teknar með það fyrir augum að starfsemi embættisins væri skilvirk og að markmiðum væri náð. Í dómnum segir að einnig megi ráða að mat ríkisendurskoðanda hafi af einhverju leyti litast af óvissu um endurkomu starfsmanna úr veikindaleyfi. Mannauðsstjóri stofnunarinnar var einnig í veikindaleyfi þegar þarna var komið við sögu.
Ekki óþarflega íþyngjandi en hefði mátt koma á samskiptum
Í skýrslu ríkisendurskoðanda fyrir dómi kom einnig fram að ákvörðun um flutning
staðgengils ríkisendurskoðanda í starfi hafi verið tekin vegna færni hennar og þess mats hans að stefnandi þekkti innviði embættis stefnda vel og gæti vel tekist á við margvísleg verkefni vegna reksturs stefnda á nýju stoðsviði, auk þess sem stefnandi yrði áfram staðgengill ríkisendurskoðanda og þannig næstæðsti yfirmaður Ríkisendurskoðunar.
„Eins og hér stendur á verður ekki talið að mat ríkisendurskoðanda hafi verið ómálefnalegt eða það eitt að geta ekki sýnt fram á skjalleg sönnunargögn um ástæður sinnar leiði til þeirrar niðurstöðu að ómálefnaleg sjónarmið liggi henni að baki. Verður þannig ekki litið svo á að það hafi verið ómálefnalegt að fela stefnanda stjórnun nýs stoðsviðs,“ segir í dómnum.
Það megi þó fallast á að ákjósanlegt hefði verið að reyna að koma á samskiptum milli ríkisendurskoðanda og staðgengilsins, „með hliðsjón af þeim góðu kostum sem góðu kostum sem ríkisendurskoðandi bar í skýrslu sinni fyrir dómi að stefnandi væri
gædd.“
Þá taldi dómurinn ekki að ákvörðunin hafi verið íþyngjandi því staðgengillinn hafi ekki átt að lækka í launum og heimildir hennar ekki orðið rýrari en áður þótt færri starfsmenn hafi átt að starfa undir henni á nýju stoðsviði.
Í launalausu veikindaleyfi
Staðgengillinn sem um ræðir er í launalausu veikindaleyfi frá embættinu. Þetta staðfestir Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi við fréttastofu.
Hann segist hafa gert Sigríði Auði Arnardóttur að staðgengli ríkisendurskoðanda í maí. Ákvörðunin bíður staðfestingar forsætisnefndar Alþingis.
