Meindýraeyðir fetar í fótspor galdramanns

Meindýravarnir Norðurlands vinna hörðum höndum við að verja þorpið í Hrísey fyrir ágangi músa sem virðast hafa fundið bólstað í eyjunni undanfarin tvö til þrjú ár. Settar hafa verið upp rúmlega 50 gildrur. Í hverri gildru er eitur sem músin sækir í.

Ólafur Pálmi Agnarsson, meindýraeyðir, segir markmiðið að verja þorpið en ólíklegt þykir að takist að útrýma öllum músum í eynni:

„Við þurfum að halda þorpinu hreinu svo þær séu ekki að koma inn og skemma hluti,“ segir Ólafur.

Þjóðsagan um galdramanninn og skammrifið

Mýs höfðu ekki sést í Hrísey síðan 1650 þar til nýverið. Þá var brugðið á það ráð að fá galdramann til þess að útrýma músunum, Þorvald Rögnvaldsson frá Sauðanesi. Þjóðsagan segir að hann hafi látið grafa holu nyrst í eyjunni og síðan tekið stórt skammrif úr sauð og dregið það á eftir sér. Allar mýsnar í eyjunni eltu Þorvald og rifið. Þegar að holunni var komið þá henti hann skammrifinu ofan í og mýsnar fylgdu í kjölfarið. Þá var mokað yfir holuna og mýs sáust ekki síðan.

Lausaganga katta bönnuð

Fyrir um þrjátíu árum var mikið um rottur í Hrísey. Þá kom meindýraeyðir og tókst með miklu átaki að útrýma þeim. Að sögn Ólafs er auðveldara að útrýma rottunum þar sem þær sækja í kjöt og aðra fæðu sem er auðvelt að eitra með. Mýsnar hins vegar þurfi ekki mikið til að lifa af og geti verið skammt frá holunni sinni í lengri tíma og lifað.

Aðspurður segir Ólafur að það að flytja ketti til Hríseyjar myndi engu breyta. Þrír kettir séu fyrir í eynni en lausaganga katta er bönnuð til þess að verja fuglalífið:

„Þeir myndu ekki útrýma músunum. Það eru ekkert allir kettir sem nenna að veiða.“

Mýs höfðu ekki sést í Hrísey síðan á sautjándu öld – þar til nú. Meindýraeyðir hefur vart undan að setja upp gildrur en fyrir fjögur hundruð árum þurfti galdramann til.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.