Meira en helmingur rúma á Vogi stendur auður

Vogur leitar leiða, í samráði við Landspítala, til að manna starfsemina svo hægt sé að taka á móti fleirum í meðferð. Álag hefur aukist á fíknigeðdeild vegna ástandsins á Vogi.

Sjúkrahúsið á Vogi er rekið á minna en helmingsafköstum vegna manneklu eftir krísuástand innan SÁÁ sem rekur Vog.

Þar eru nú 15 sjúklingar í vímuefnameðferð en eru að jafnaði 35.

Alma Möller heilbrigðisráðherra segir borðleggjandi að þetta leiði til lengri biðlista og lengri biðtíma.Þetta er auðvitað óásættanlegt. Það eru komnir tveir mánuðir þar sem sjúkrahúsið hefur verið á undir helmingsafköstum.

Alma segir að vonir standi til að úr fari að rætast, verið sé að gera ráðstafanir til að Vogur verði starfandi að fullu í lok mánaðarins.Heilbrigðisráðherra segir óásættanlegt að biðlistar í fíknimeðferð hafi lengst í kjölfar uppsagna og krísuástands á Vogi. Meira en helmingur rúma stendur þar auður, álag hefur aukist annars staðar í heilbrigðiskerfinu.

Freista þess að leysa vandann með Landspítalastarfsfólki

„Það hefur aðallega verið skortur á læknum. Forstjórinn hefur verið í sambandi við Landspítala um að hjálpa til við mönnun. Eitthvað var hún vongóð um að það myndi rætast.“

Hvernig getur Landspítali hjálpað til við mönnun? Þau eru ekkert ofsæl af fólki. „Nei. Það yrði þá að leyfa fólki, sem vill vinna þarna, að vinna aukavinnu.“

114% fleiri lágu á fíknigeðdeild

Vegna ástandsins á Vogi hefur álag aukist víða í heilbrigðiskerfinu. Til dæmis fjölgaði komum á bráðamóttöku sem tengjast vímuefnaneyslu um 15% í september og október frá árinu áður, 22% fleiri komu á fíknigeðdeild og rúmanýting þar var 114% meiri en í sömu mánuðum í fyrra.

Hverjar heldurðu að afleiðingarnar verði þegar sjúklingar í samfélaginu fá ekki þá læknisaðstoð og þá sjúkrahúsvist sem þeir þurfa? „Það er auðvitað alvarlegt,“ segir Alma.

Ráðherra segir að staðan sem upp er komin á Vogi gefi tilefni til að endurskoða hvernig heilbrigðisþjónusta er veitt í þessum málaflokki. „Auðvitað fær þetta mann til að hugsa um hvort skynsamlegt sé að vera með öll eða flest eggin í sömu körfunni.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.